Meistaraflokkur Grundarfjarðar

Knattspyrnulið Grundarfjarðar karla er samansett af ægifögrum einstaklingum sem ætla alla leið.

Vafraðu um


Eldra efni

  • 2009

Meistaraflokkur Grundarfjarðar

Afmælisdagur:

10. júlí 1933

Heimilisfang:

Grundargata 68

Staðsetning:

Grundarfjörður

Önnur vefsíða:

http://umfg.grundo.is

Um:

Við erum lang bestir

Kennitala:

630189-2689

Bankanúmer:

0191-05-70100

Tenglar

Blogg

5.9.2010

Lokahófið

Lokahófið fór fram í gær og þetta var mikil snilld. Ég held að allir hafi bara skemmt sér gríðarlega vel og stemmingin hafi verið almennt mjög góð.


Leikmaður ársins valinn af leikmönnum: Aron Baldursson
Markahæsti leikmaðurinn: Heimir Þór Ásgeirsson
Efnilegasti leikmaðurinn: Sigurbjörn Bjarnason

Búinn að henda inn myndum sem eru misgóðar en lýsa stemmingunni nokkuð vel.

Skrifað 5.9.2010 kl. 13:26 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

27.8.2010

Leikbann

Á fundi Aga-og úrskurðarnefnd KSÍ 24.8.2010 var

Almar Björn Viðarsson          - Meistaraflokkur karla -

úrskurðaður í 1 leiks bann vegna 4 áminninga.




En þar sem að leikbönn vegna áminninga flytjast ekki á milli ára þá getur hann Almar okkar andað rólega því að þá er hann ekki í banni fyrir fyrsta leik á næsta ári.

Skrifað 27.8.2010 kl. 10:05 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.8.2010

Tímabilinu lokið

Þá er Grundarfjörður búinn að spila alla sína leiki á Íslandsmóti KSÍ þetta sumarið...

Augnablik - Grundarfjörður 4-3

Byrjunarlið Grundarfjarðar var þannig skipað:
Viktor var í marki
Haddi í hægri bak
Ingi B í vinstri bak
Aron og Jón Frímann miðverðir
Heimir hægri kantur
Birkir vinstri kantur
Ragnar og Hrannar á miðju
Himmi fyrir framan
Almar frammi

Bekkur:
Tommi
Kári Viðars
Sigurbjörn B
Árni Þór

Við byrjuðum leikinn ágætlega og bæði lið vorur að sækja. Svo um á 35 mín gerðist eitthvað hjá okkur. Allt hrundi og við fengum á okkur 3 mörk á 4 mínútum. Ragnar Smári náði að laga stöðuna með fyrsta marki sínu í sumar í 3-1 og þannig var staðan í hálfleik.

Í síðari hálfleik kemur Kári Viðars inn fyrir Birki og við byrjum að sækja og setja á þá. Á 70 mín uppskerum við því að Almar nær skoti á markið með viðkomu í varnarmanni og staðan orðin 3-2. Við þetta tvíeflumst við og aðeins 2 mínútum síðar á Heimir frábæra aukaspyrnu beint á kollinn á Jóni Frímanni sem stangar boltann í stöngina og inn og staðan orðin 3-3. Þvílík endurkoma. Eftir þetta liggjum við á þeim og vorum töluvert betri og með hættulegri færi. Hrannar var mjög óheppinn þegar að gott skot hans stefndi upp í markvinkilinn en markvörður Augnabliks náði að verja á einhvern ótrúlegan hátt. Svo átti Jón Frímann hörku skalla sem því miður fyrir okkur fór beint á markvörðinn.
Svo gerist það á 90 mín eftir að við erum búnir að sækja og sækja að það kemur langur bolti fram sem að vörnin missir yfirsig, Viktor grípur boltann en sóknarmaður Augnabliks nær að slæma öxlinni í boltann eftir að Viktor er með báðar hendur á honum, Viktor missir boltann og eftirleikurinn er auðveldur fyrir sóknamann Augnabliks og staðan því 4-3. Við tökum miðju og dómarinn flautar af. Gríðarlega svekkjandi og tel ég að við höfum átt meira skilið úr þessum leik.

Niðurstaða sumarsins eru 5 stig. Einn sigur og tvö jafntefli. Í mjög mörgum leikjum vorum við að fá á okkur mörk á síðustu mínútunum og kenni ég formleysi um. Stefnan er að halda áfram næsta sumar en þá verðum við líka að læra af þessu tímabili og koma töluvert betur undirbúnir undir það.

Annars þökkum við kærlega fyrir sumarið, stuðninginn og stemminguna í brekkunni á leikjunum í sumar.

Takk fyrir okkur.

Skrifað 23.8.2010 kl. 13:49 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.8.2010

Hópurinn fyrir morgundaginn

Hópurinn fyrir leikinn á móti Augnablik lítur svona út...

Almar Björn Viðarsson
Aron Baldursson
Birkir Freyr Baldursson
Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson
Heimir Þór Ásgeirsson
Hilmir Hjaltason
Hrannar Már Ásgeirsson
Ingi Björn Ingason
Jón Frímann Eiríksson
Kári Viðarsson
Ragnar Smári Guðmundsson
Sigurbjörn Bjarnason
Tómas Freyr Kristjánsson
Viktor Örn Jóhannsson

14 manns komnir... gæti verið að það bætist í hópinn... kemur í ljós í kvöld.

Gulli dettur út vegna meiðsla og inn kemur stórleikarinn og snillingurinn Kári Viðars.

Skrifað 19.8.2010 kl. 15:19 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.8.2010

Grundarfjörður-Ýmir 1-2

Það gengur ekkert upp hjá okkur... Við byrjuðum þennan leik mjög vel  og við uppskárum þegar Heimir þór slapp einn innfyrir vörnina og vippaði boltanum yfir varnarlausan markvörðinn. Við leiddum 1-0 í hálfleik og þetta leit ágætlega út hjá okkur.
En í síðari hálfleik eins og svo oft áður þá gerist eitthvað hjá okkur. Miðjan hrynur, of mikið bil á milli varnar og miðju og Ýmismenn líta út eins og einhverjir sambaspilarar sem yfirspila okkur. Þeir uppskáru 2 mörk út úr því og kláruðu leikinn.

Nú er bara einn leikur eftir af tímabilinu og verður hann föstudagskvöldið 20 ágúst næstkomandi. Þar mætum við liði Augnabliks og við verðum einfaldlega að sigra þann leik ef við ætlum okkur eitthvað annað en neðsta sætið. Augnablik er með 7 stig og við með 5 þannig að sigur í þeim leik lyftir okkur af botninum. Það er því heiðurinn og stoltið að veði í þeim leik.

Skrifað 17.8.2010 kl. 10:00 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.8.2010

Grundarfjörður - Ýmir

Þá er það síðasti heimaleikur Grundarfjarðar þetta sumarið... Ýmir mætir á svæðið og etur kappi við strákana okkar.

Hópurinn fyrir morgundaginn er eftirfarandi:

Almar Viðarsson
Ari Bent Ómarsson
Aron Baldursson
Birkir Freyr Baldursson
Gunnlaugur Smárason
Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson
Heimir Þór Ásgeirsson
Hilmir Hjaltason
Hrannar Már Ásgeirsson
Ingi Björn Ingason
Jón Steinar Ólafsson
Ragnar Smári Guðmundsson
Runólfur Jóhann Kristjánsson
Tómas Freyr Kristjánsson
Viktor Örn Jóhannsson
Vilhjálmur Pétursson

Það verður súpa kl 16:30 og mæting í klefa kl 17:45

ÁFRAM GRUNDARFJÖRÐUR

Skrifað 12.8.2010 kl. 13:13 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

8.8.2010

Skallagrímur - Grundarfjörður 3-1

Grundarfjörður mætti í Borgarnes síðasta föstudag og atti kappi við Skallagrím. Það var frábært fótboltaveður í Borgarnesi. Grenjandi rigning og logn. Byrjunarliðið var þannig skipað:
Viktor mark
Villi Péturs hægri bak
Ingi B vinstri bak
Ragnar Smári og Aron B voru miðverðir
Almar hægri kantur
Gulli vinstri kantur
Hrannar og Semek á miðju
Heimir og Himmi frammi

Á bekknum sátu Tommi, Haddi og Tryggvi.

Leikurinn byrjaði vel og bæði lið áttu færi. Fljótlega í leiknum sleppur Heimir Þór einn í gegn og vippar laglega yfir markvörð Skallanna og kemur okkur í 1-0. Skömmu síðar sleppa Skallarnir þó í gegn og jafna leikinn 1-1. Þannig var staðan í leikhléi.

Í síðari hálfleik skiptust liðin á að sækja. Viktor átti nokkrar laglegar markvörslur og hélt þessu jöfnu. Svo um miðjan síðari hálfleik byrjum við að liggja svolítið á þeim og vorum óheppnir að ná ekki forustunni aftur. Svo er það sama gamla tuggan að þreytan byrjaði að segja til sín og á síðustu 5 mínútunum eða svo fáum við á okkur 2 mörk og leikurinn endaði 3-1.

Við getum samt gengið stoltir af velli enda vorum við að sýna fínan leik á köflum. Það er bara gamla góða formið sem er að stríða okkur eins og svo oft áður í sumar.

Skrifað 8.8.2010 kl. 23:08 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

5.8.2010

Skallagrímur - Grundarfjörður

Grundfirðingar fara í Borgarnes á morgun og spila við Skallagrím kl 19:00

Hópurinn er eftirfarandi:

Almar Viðarsson
Aron Baldursson
Gunnlaugur Smárason
Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson
Heimir Þór Ásgeirsson
Hilmir Hjaltason
Hrannar Már Ásgeirsson
Jón Steinar Ólafsson
Ragnar Smári Guðmundsson
Semek Andri Þórðarson
Tómas Freyr Kristjánsson
Viktor Örn Jóhannsson
Vilhjálmur Pétursson




Skrifað 5.8.2010 kl. 21:31 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

27.7.2010

Tap í Breiðholtinu

Grundarfjörður laut í gervigras í kvöld þegar þeir mættu á Leiknisvöllinn og öttu kappi við KB í Breiðholtinu.


Byrjunarliðið var þannig:
Viktor í marki
Ragnar Smári í hægri bak
Aron í vinstri bak
Beggi og Jón Frímann voru miðverðir
Almar hægri kantur
Gulli Smára vinstri kantur
Semek og Hrannar á miðju
Hilmir og Heimir Þór frammi

Á bekknum voru:
Arnar Dóri
Batti
Valur
Hinni
Runni





Leikurinn var í járnum framan af og staðan var 0-0 í hálfleik. Í seinni hálfleik fór að draga af mönnum og á 60 mín komust KB menn í 1-0. Þeir tvíelfdust við þetta og gengu á lagið og settu 3 mörk í viðbót og leikurinn endaði 4-0







Fleiri myndir í albúminu. Myndirnar tók Dabbi Wium.

Skrifað 27.7.2010 kl. 22:56 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

26.7.2010

KB - Grundarfjörður

Hópurinn fyrir leikinn gegn KB er klár en lagt verður af stað á morgun kl 16:30. Þeir sem eru í Reykjavík eiga að vera mættir kl 19:00 á Leiknisvöllinn en leikið verður á gervigrasinu.

Hópurinn lítur svona út:

Almar Viðarsson
Aron Baldursson
Arnar Dóri Ásgeirsson
Elínbergur Sveinsson
Gunnlaugur Smárason
Heimir Þór Ásgeirsson
Hilmir Hjaltason
Hinrik Jóhannesson
Hrannar Már Ásgeirsson
Jón Frímann Eiríksson
Ragnar Smári Guðmundsson
Runólfur Jóhann Kristjánsson
Semek Andri Þórðarson
Styrmir Karlsson
Valur Tómasson
Viktor Örn Jóhannsson

Liðsstjóri og þjálfari verður Tryggvi Hafsteinsson.

Síðast fór KB með 4-1 sigur og öll stigin úr Grundarfirði... hvað gerist nú?

Þá er bara að taka á því og ná sér í fleiri stig.

Skrifað 26.7.2010 kl. 21:00 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

26.7.2010

Þvílíkur leikur

Það var frábært veður og þvílík stemming þegar að Grundarfjörður og Léttir mættust síðasta föstudagskvöld.

Það var þétt setið í brekkunni enda bæjarhátíðin "Á Góðri Stund" haldin í 16 sinn. Byrjunarlið Grundarfjarðar var:
Viktor í marki
Jón Steinar hægri bak
Aron vinstri bak (Fyrirliði)
Jón Frímann og Beggi miðverðir
Almar hægri kantur
Arnar Dóri vinstri kantur
Semek og Hrannar á miðju
Hilmir og Heimir Þór frammi

Við byrjuðum ágætlega og vorum að pressa. Það var svo gegn gangi leiksins þegar að Léttir komst yfir og skömmu eftir það þá komust þeir í 2-0. Þetta leit ekkert allt of vel út en við lögðum ekki árar í bát. Það var eftir mikið harðfylgi að Hilmir minnkaði muninn í 2-1 og svo fiskaði hann víti skömmu síðar sem að Heimir Þór skoraði örugglega úr og jafnaði metin 2-2.

Í síðari hálfleik var það sama uppá teningnum. Við vorum að sækja og skapa okkur færi þegar að það varð smá klaufagangur í vörninni og við misstum mann innfyrir sem að kom Létti í 3-2 fyllilega óverðskuldað. Skömmu eftir það skoruðu svo Léttismenn þvílíkt mark með skoti af 30 metra væri sem að Viktor réð ekkert við og staðan því orðin 4-2 og útlitið ekkert allt of bjart. Þá kemur Runni inná þegar 20 mín voru eftir og hann var ekki lengi að setja mark sitt á leikinn... Mjög skömmu eftir að hann kom inná þá slapp hann einn í gegn og kláraði færið af mikilli yfirvegun. Staðan orðin 4-3 og lítið eftir. Stuttu síðar geysast Grundfirðingar aftur í sókn og boltinn berst á Runna sem jafnar leikinn 4-4 og allt ætlaði að verða vitlaust í stúkunni. Frábær endurkoma í annað skiptið í leiknum.
Við fengum svo dauðafæri rétt undir lok leiksins þegar að Heimir Þór sólaði sig í gegnum alla vörn Léttis og renndi boltanum á Runna en á einhvern óskiljanlegan hátt þá fór boltinn yfir markið. Runni var virkilega óheppinn í það skiptið en svona er þetta bara.

Grundarfjörður - Léttir 4-4
Hilmir
Heimir Þór
Runni 2


Áhorfendur fengu eitthvað fyrir peninginn því 8 mörk litu dagsins ljós og mikil stemming.

Næsti leikur er á morgun við KB í breiðholtinu.

Skrifað 26.7.2010 kl. 8:58 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.7.2010

Grundarfjörður - Léttir

Hópurinn fyrir morgundaginn er klár...

Almar Björn Viðarsson
Ari Bent Ómarsson
Aron Baldursson
Arnar Dóri Ásgeirsson
Elínbergur Sveinsson
Gunnlaugur Smárason
Heimir Þór Ásgeirsson
Hilmir Hjaltason
Hinrik Jóhannesson
Hrannar Már Ásgeirsson
Jón Frímann Eiríksson
Jón Steinar Ólafsson
Runólfur Jóhann Kristjánsson
Tómas Freyr Kristjánsson
Semek Andri Þórðarson
Viktor Örn Jóhannsson

Þetta eru þeir 16 sem fara á skýrslu.

Svo hvetjum við alla til að mæta á leikinn og hvetja okkur til dáða.


Hrannar er búinn að taka út sitt 2 leikja bann og er búinn að lofa að hann ætlar að tolla inná allan tímann.

Skrifað 22.7.2010 kl. 15:53 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.7.2010

Almar í Grundarfjörð (Staðfest)

Grundarfjörður hefur styrkt sig verulega fyrir komandi átök á tímabilinu. Eftir langar og strangar samningaviðræður við Tindastól þá náðust samningar loksins rétt undir miðnættið í gær um kaup á Almari Viðarssyni. Tindastólsmenn gáfu sig loks þegar formaður UMFG bætti einum höldupoka af heimabökuðum kleinum frá Laugu á Hömrum inní kaupverðið.
Þá tók við samningaviðræður við leikmannin sjálfan og var það T-Bone sem stýrði þeim viðræðum. Laun eru samkvæmt kjarasamningum uppaldra skagamanna en það ku vera 34 appelsínur á mánuði.

Ekki minnkar fegðurðin í liðinu við þessi kaup.

Við bjóðum Almar velkominn í Grundarfjörð en hann verður í hópnum á morgun og mun fá tækifæri til að standa undir verðmiðanum.

Tommi

Skrifað 22.7.2010 kl. 15:45 af Tommi

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.7.2010

Á Góðri Stund

Síðasti leikur var ekkert til að hrópa húrra fyrir... við steinlágum gegn stólunum og lítið um það að segja.

Nú er stutt í bæjarhátíðina okkar í Grundarfirði og á föstudagskvöld munu Grundarfjörður og Léttir eigast við á Grundarfjarðarvelli. Það verður vonandi mikið af fólki á vellinum og hörku stemming. Við hvetjum alla til að mæta og styðja við bakið á okkur. Þetta er næst síðasti heimaleikurinn í sumar.

Skrifað 20.7.2010 kl. 8:17 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.7.2010

Tindastóll mætir í fjörðinn

Grundarfjörður tekur á móti toppliði Tindastóls kl 14:00 laugardaginn 10 júlí. Nú er að fylgja eftir góðum sigri í síðasta leik og reyna að fá einhver stig. Síðast töpuðum við með miklum mun á Sauðárkróki en það var í okkar fyrsta leik.
Nokkur skörð eru höggvin í leikmannahóp Grundfirðinga en það vantar nokkra sterka leikmenn frá því í síðasta leik. En þetta er bara tækifæri fyrir unga leikmenn til að láta ljós sitt skína.

Hópurinn er þannig skipaður:

Ari Bent Ómarsson
Aron Baldursson
Árni Þór Björnsson
Bjartmar Pálmason
Gunnlaugur Smárason
Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson
Heimir Þór Ásgeirsson
Ingi Björn Ingason
Jón Frímann Eiríksson
Ragnar Smári Guðmundsson
Runólfur Jóhann Kristjánsson
Semek Andri Þórðarsson
Sigurbjörn Bjarnason
Tómas Freyr Kristjánsson
Tomasz Weyer
Viktor Örn Jóhannsson

Liðsstjóri verður Tryggvi Hafsteinsson


Þessir eru báðir í hópnum.

Áfram Grundarfjörður



Skrifað 9.7.2010 kl. 21:36 af Tommi

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

2.7.2010

Sigur

Loksins náðu Grundfirðingar í sinn fyrsta sigur í sumar.

Það voru Augnabliksmenn úr Kópavoginum sem komu í heimsókn í fjörðinn fagra þetta föstudagskvöld. Byrjunarlið Grundarfjarðar var þannig skipað.
Viktor í marki
Jón Steinar í hægri bak
Aron í vinstri bak
Beggi Sveins og Jón Frímann miðverðir
Gulli Smára á hægri kanti
Arnar Dóri á vinstri kanti
Ragnar Smári og Semek á miðju
Hilmir og Heimir Þór frammi

Á bekknum sátu.
Tommi
Runni
Hinni Konn
Árni Þór
Birkir Bald

Um liðsstjórnina sáu þeir
Tryggvi
Árni Friðjón
Gústi Alex
Sigurbjörn

Lagt var upp með kerfið 4-4-2 og byrjuðum við af miklum krafti. Snemma í leiknum fáum við hornspyrnu, boltinn berst útfyrir teig þar sem að Semek tekur hann viðstöðulaust og smell hittir tuðruna svo að markvörðurinn á í mestu vandræðum, hann nær þó að verja en Gulli fylgdi vel á eftir og var virkilega óheppinn að skora ekki. Stuttu síðar átti Beggi skot í slá eftir klafs í teignum en inn vildi boltinn ekki. Við fengum fleiri færi og vorum betri aðilinn í þessum leik. Samt var 0-0 í hálfleik og í síðari hálfleik áttum við að spila með vindi. Augnablik voru mun sprækari í síðari hálfleik heldur en þeim fyrri og með smá heppni hefðu þeir getað refsað okkur fyrir klaufaskapinn í fyrri hálfleik.
Við vorum orðnir heldur óþreyjufullir þegar að Viktor á langt útspark, Heimir Þór geysist á eftir boltanum og fer með hann að hornfánanum. Þar leikur hann snyrtilega á varnarmanninn og fer framhjá honum á glæsilegan hátt. Hann æðir í átt að markinum og varnarmaðurinn á eftir. Varnarmaðurinn fer aftan í hann og dómarinn dæmir víti. Heimir stígur sjálfur upp og skorar af miklu öryggi og kemur okkur í 1-0 á 85 mínútu.
Mínúturnar sem eftir lifðu voru ansi taugatrekkjandi og lengi að líða. En gríðarlegur fögnuður braust út þegar Maggi dómari flautaði til leiksloka og fyrsti sigurinn staðreynd. Við þennan sigur lyftum við okkur af botni riðilsins og uppfyrir Augnablik.

Þökkum stuðninginn í kvöld en áhorfendur voru frábærir. Takk fyrir okkur.


Lúxusleikmaðurinn Blanco (Heimir Þór) settann úr víti í kvöld.

Skrifað 2.7.2010 kl. 23:43 af Tommi

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

1.7.2010

Hópurin fyrir leikinn á morgun

Grundarfjörður og Augnablik mætast á Grundarfjarðarvelli kl 20:00 annað kvöld. Hópurinn sem á að mæta í þennan leik er eftirfarandi.

Aron Baldursson
Árni Þór Björnsson
Birkir Freyr Baldursson
Elínbergur Sveinsson
Gunnlaugur Smárason
Heimir Þór Ásgeirsson
Hilmir Hjaltason
Hinrik Konráðsson
Jón Frímann Eiríksson
Jón Steinar Ólafsson
Ragnar Smári Guðmundsson
Runólfur Jóhann Kristjánsson
Semek Andri Þórðarson
Sigurbjörn Bjarnason
Tómas Freyr Kristjánsson
Viktor Örn Jóhannsson

Tryggvi Hafsteinsson er meiddur
Arnar Dóri Ásgeirsson er veikur
Hrannar Már Ásgeirsson í banni


Það mun mikið mæða á þessum köppum.

Nú er bara að taka á því og ná í fyrsta sigurinn. Okkur veitir ekkert af öllum þeim stuðningi sem hægt er að fá. ALLIR Á VÖLLINN.

Skrifað 1.7.2010 kl. 14:36 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

29.6.2010

2 leikja bann

Hrannar Már hefur verið úrskurðaður í 2 leikja bann.

Grundarfjörður

Grundargötu 68
350 Grundarfjörður


Á fundi Aga-og úrskurðarnefnd KSÍ 29.6.2010 var

Hrannar Már Ásgeirsson         - Meistaraflokkur karla -
úrskurðaður í 2 leikja bann vegna brottvísunar 25.06.2010.



                          Aga-og úrskurðanefnd KSÍ


Hrannar verður búinn að taka út bannið þann 23 júlí á móti Létti.

Skrifað 29.6.2010 kl. 18:49 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

28.6.2010

Tap gegn Létti

Það gengur lítið upp hjá okkur þessa dagana. Leikurinn gegn Létti var ekki áfallalaus. Við vorum í tómu tjóni til að byrja með. Lentum 3-0 undir eftir c.a. 20 mín leik. Svo lendir Tryggvi í slæmum meiðslum og þarf að fara uppá slysó og verður frá út sumarið. Skömmu eftir það er svo Hrannar rekinn útaf með beint rautt spjald sem hefði alveg getað verið gult. Þannig var það að við fengum 1 mark í viðbót á okkur fyrir hálfleikinn og vorum 4-0 undir í hálfleik.

Í seinnihálfleik gerðum við smá breytingar og vorum talsvert líflegri í honum. Náðum að minnka muninn í 4-2 með góðum mörkum frá Semek og Arnari Dóra en lengra komumst við ekki og Léttir náði að setja eitt í viðbót undir lokin. Leikurinn endaði 5-2 og nú er ekkert annað að gera en að bíta á jaxlinn.

Nú eru 3 heimaleikir í röð og nú er málið að ná í einhver stig. Við eigum Augnablik hérna heima föstudaginn 2 júlí kl 20:00, svo kemur topplið Tindastóls í heimsókn þann 10 júlí kl 14:00 og svo er það Léttir aftur sem verður á föstudagskvöldinu á Góðri Stund þann 23 júlí.


Þessir menn eru líklega úr leik í næstu leikjum.

Skrifað 28.6.2010 kl. 8:54 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

24.6.2010

Hópurinn fyrir Léttisleikinn

Föstudaginn 25. júní kl 20:00 mætir Grundarfjörður í Breiðholtið til að etja kappi við Létti á ÍR vellinum (gervigrasinu).



Hópurinn sem á að fara í þennan leik er:

Aron Baldursson
Arnar Dóri Ásgeirsson
Birkir Freyr Baldursson
Gunnlaugur Smárason
Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson
Heimir Þór Ásgeirsson
Hilmir Hjaltason
Hrannar Már Ásgeirsson
Ingi Björn Ingason
Jón Frímann Eiríksson
Jón Steinar Ólafsson
Ragnar Smári Guðmundsson
Runólfur Jóhann Kristjánsson
Semek Andri Þórðarson
Tómas Freyr Kristjánsson
Tryggvi Hafsteinsson
Viktor Örn Jóhannsson

Hópurinn telur 17 manns í þetta skiptið en það fara aðeins 16 á skýrslu. Þetta er gert vegna smávægilegra meiðsla sem eru í hópnum.

Einnig vantar okkur liðsstjóra ef einhver hefur áhuga á að koma með.

Áfram Grundarfjörður.
 

Skrifað 24.6.2010 kl. 23:46 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.6.2010

Tap fyrir Sköllunum

Grundarfjörður og Skallagrímur áttust við í gærkvöldi í hörku leik á Grundarfjarðarvelli. Þar fóru Skallarnir með 3 óverðskulduð stig heim með sér. Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og ætluðu bæði lið sér stigin 3. Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik og staðan var 0-0 þegar dómarinn flautaði til leikhlés.

Í seinni hálfleik var einum leikmanni Skallagríms vikið af leikvelli fyrir seinna gula spjaldið. Eftir það sóttu Grundfirðingar án afláts en ekkert gekk upp við markið. Skallagrímur komst í eina skyndisókn í öllum seinnihálfleik og því miður fyrir okkur skoruðu þeir úr sínu eina færi. Grundfirðingar lögðu allt í sóknina en voru virkilega óheppnir að fá ekkert útúr þessum leik. Lokastaða 0-1 og það voru þung skref upp tröppurnar í búningsklefann.

Jón Pétur tók einhverjar myndir en það á eftir að setja þær inn og verður það gert við fyrsta tækifæri.

Næsti leikur er á föstudaginn við Létti á ÍR velli. Við verðum bara að taka á því þar.

Skrifað 22.6.2010 kl. 8:42 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

21.6.2010

Grundarfjörður - Skallagrímur

Í kvöld kl 20:00 tekur Grundarfjörður á móti Skallagrím á Grundarfjarðarvelli. Sannkallaður vesturlandsslagur hér á ferð.



Hópurinn fyrir leikinn er:

Aron Baldursson
Arnar Dóri Ásgeirsson
Árni Þór Björnsson
Elínbergur Sveinsson
Gunnlaugur Smárason
Heimir Þór Ásgeirsson
Hilmir Hjaltason
Hinrik Konráðsson
Ingi Björn Ingason
Jón Frímann Eiríksson
Jón Steinar Ólafsson
Ragnar Smári Guðmundsson
Sigurbjörn Bjarnason
Tómas Freyr Kristjánsson
Tryggvi Hafsteinsson
Viktor Örn Jóhannsson

Nú hvetjum við alla til að mæta á Grundarfjarðarvöll og styðja við bakið á okkur.

Skrifað 21.6.2010 kl. 8:34 af Tommi

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

15.6.2010

Hrannar í bann

Grundarfjörður

Grundargötu 68

350 Grundarfjörður


Á fundi Aga-og úrskurðarnefnd KSÍ 15.6.2010 var


Hrannar Már Ásgeirsson         - Meistaraflokkur karla -

úrskurðaður í 1 leiks bann vegna brottvísunar 12.06.2010.



                          Aga-og úrskurðanefnd KSÍ


Já hann Hrannar okkar missir því miður af næsta leik.

Skrifað 15.6.2010 kl. 23:06 af Tommi

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.6.2010

Fyrsta stigið

Jæja þá er fyrsta stigið komið í hús eftir mikinn baráttuleik við Ými í Fagralundi.

Byrjunarliði var:
Viktor í marki
Ingi Björn hægri bak
Gulli Smára vinstri bak
Jón Frímann og Aron miðverðir
Tryggvi hægri kantur
Jón Steinar vinstri kantur
Ragnar Smári og Hrannar á miðju
Heimir og Hilmir frammi

Á bekknum sátu:
Arnar Dóri
Tommi
Birkir
Árni Þór
Runni

Við byrjuðum ágætlega og vorum að pressa svolítið upp völlinn. Vorum að skapa okkur ágætis færi en á 12 mínútu sleppa Ýmis menn í gegnum vörnina og ná að setja fyrsta markið. Rangstöðulykt segja sumir en látum það kyrrt liggja.
Við reynum bara að halda haus og halda áfram. Heimir Þór á mjög gott skot sem markvörðurinn nær að verja naumlega.
Á 29 mín. eiga Ýmismenn hornspyrnu. Boltinn skoppar fram hjá 3 varnarmönnum sem ná samt ekki að hreinsa hann burt og Ýmismenn ná að setja boltann í netið. Þannig var staðan í hálfleik... semsagt 2-0 fyrir Ými.

Í seinni hálfleik er ekkert annað að gera en að reyna að halda áfram en á 55 mín verður Jón Frímann fyrir því óláni að skora sjálfsmark og útlitið orðið dökkt fyrir okkar menn.

En það var lítið annað að gera en að halda áfram að pressa. Arnar Dóri kom inn fyrir Jón Steinar og átti góða spretti. Á 80 mínútu sleppur Hilmir inn fyrir vörnina, leikur á markvörðinn sem fellir hann innan vítateigs og dómarinn dæmir vítaspyrnu.
Hilmir stígur á punktinn og skorar og minnkar muninn í 3-1.
Á 84 mín fær Hrannar Már sitt annað gula spjald og er sendur í sturtu og við því einum færri. Við það eflumst við bara og Runni kemur inn fyrir Hilmir og á 89 mín. sleppur hann innfyrir vörnina og markvörðurinn fellir hann þegar hann fer framhjá honum.
Dómarinn dæmir annað víti og Heimir Þór stígur á punktinn og skorar af miklu öryggi og staðan orðin 3-2 og lítið eftir.
Þá er allt lagt í sóknina og á 92 mín. fáum við aukaspyrnu á vinstri kantinum við vítateigshornið. Allir leikmenn Grundarfjarðar hrúga sér inní teig nema Viktor og Birkir sem sat aftur. Tryggvi kemur með boltann inn þar sem að Ragnar Smári skallar hann fyrir markið og eftir eitthvað smá hnoð nær Jón Frímann að kvitta fyrir sjálfsmarkið með því að koma tuðrunni yfir línuna og jafnar metin 3-3.
Mikil dramatík og leikmenn Grundarfjarðar fögnuðu gríðarlega mikið. Ýmismenn tóku miðju og í því flautaði dómarinn til leiksloka.

Fyrsta stigið staðreynd og þetta er mikið baráttustig sem er gott veganesti í næsta leik sem er heimaleikur á móti Skallagrím.


Hilmir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Grundarfjörð.


Heimir Þór settann úr vítaspyrnu.


Jón Frímann setti tvö í dag, eitt í hvort mark.

Skrifað 12.6.2010 kl. 21:44 af Tommi

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.6.2010

Ýmir - Grundarfjörður

Ýmir og Grundarfjörður eigast við laugardaginn 12 júní kl 12:00 í Fagralundi.

Hópurinn fyrir leikinn:

Aron Baldursson
Arnar Dóri Ásgeirsson
Árni Þór Björnsson
Birkir Freyr Baldursson
Gunnlaugur Smárason
Heimir Þór Ásgeirsson
Hilmir Hjaltason
Hrannar Már Ásgeirsson
Ingi Björn Ingason
Jón Frímann Eiríksson
Jón Steinar Ólafsson
Ragnar Smári Guðmundsson
Runólfur Jóhann Kristjánsson
Tómas Freyr Kristjánsson
Tryggvi Hafsteinsson
Viktor Örn Jóhannsson

Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson verður fitness þjálfari og það er pláss á skýrslu ef fleiri vilja leggja okkur lið.

Svo er bara að taka á því.



Skrifað 11.6.2010 kl. 13:42 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

10.6.2010

Ný frétt

Rafa Benitez tekinn við Inter... þar með lauk þessum eilífu vangaveltum um að Benitez væri að fara að taka við Grundarfirði. Það kvisaðist út meðal fréttamiðla að Benitez hefði lýst yfir áhuga á að þjálfa Grundarfjörð en því var ávallt neitað. Grundfirðingar eru í nógu slæmum málum fyrir án þess að geðstirður spanjóli með kleinuhring færi að fokka meira í því. Nú geta Tómas Freyr Kristjánsson, Tryggvi Hafsteinsson , Jón Frímann og félagar haldið sínu striki óáreittir af fréttamiðlum.




Skrifað 10.6.2010 kl. 13:22 af Tommi

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.6.2010

Mæting á æfingar

Mæting á æfingar hefur dottið niður hjá okkur. Við þurfum að gera eitthvað í því. Við þurfum að grafa djúpt og finna ástæðu þess að menn eru hættir að mæta. Eru menn að vinna? Eru æfingarnar of snemma? Eru menn enn að jafna sig eftir leikinn á laugardaginn?
Hverjar sem ástæðurnar eru þá þurfum við að hreyfa okkur meira. Það sást glögglega í leiknum síðasta laugardag að menn voru varla í formi til að klára heilan leik. Það vantar ekki mikið uppá formið en það vantar samt eitthvað. Nú verðum við hver og einn að líta í eigin barm og spyrja "hvað ætla ég að gera í þessu?"


Strax á þessum tímapunkti var Tryggvi orðinn þreyttur... enda búinn að hlaupa alla leið úr búningsklefanum.


Þessum fannst gott að hvíla sig.


Meira að segja fyrirliðinn þurfti að leggja sig í miðjum leik.

Nú verðum við að taka á því og byrjum í dag.

Skrifað 9.6.2010 kl. 13:39 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

7.6.2010

Grundarfjörður - KB 1-4

Jæja. Fyrsti heimaleikurinn búinn og ekki fór hann eins og við óskuðum okkur en samt voru mikil batamerki á liðinu frá því í leiknum við Tindastól.

Byrjunarliðið var þannig:
Viktor í marki
Gunnlaugur Smára í hægri bak
Arnar Dóri í vinstri bak
Ingi Björn og Jón Frímann miðverðir
Aron Baldurs var sweeper
Ragnar Smári, Hrannar og Tryggvi á miðjunni
Heimir og Hilmir voru frammi.

Þetta var semsagt 5-3-2 kerfi
Á bekknum sátu Tommi, Haddi, Jón Steinar, Birkir og Hinni markvörður.


Hemmi Geir stjórnaði með harðri hendi.



Þetta byrjaði mjög vel hjá okkur. Fyrstu tíu mínúturnar eða svo vorum við nánast á þeirra vallarhelmingi og vorum að spila boltanum ágætlega. Tryggvi skoraði mark sem var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. KB menn unnu sig meira inní leikinn þegar leið á og svo á 39 mín skoruðu þeir mark eftir langa sendingu fram. Kantmaðurinn þeirra skallaði boltann inn og Viktor kom engum vörnum við. Þannig var staðan þegar Maggi dómari flautaði til hálfleiks.


Í seinni hálfleik skiptum við um leikkerfi og spiluðum 4-3-3 og fórum að sækja svolítið. KB komst í 2-0 eftir eina sóknina hjá þeim. Það kom skot utan af velli sem Viktor náði að verja en því miður sló hann boltann upp í loft og hann lak yfir línuna. Aðeins 3 mínútum síðar áttum við svo hornspyrnu sem að Heimir tók og sendi boltann beint á kollinn á Aroni sem að skallaði hann inn og minnkaði muninn. 1-2 og leikurinn í járnum. Þetta var fyrsta mark Grundarfjarðar í opinberum leik í háa herrans tíð og er þetta mark tileinkað Atlantic Fresh. Eftir þetta sóttum við meira og virtumst nokkuð líklegir en eins og svo oft áður þá var það formið sem skildi okkur að. Við vorum eiginlega búnir á því og þeir settu 2 mörk í viðbót á 81 og 87 mín. Leikurinn endaði því 1-4.


Það er margt jákvætt sem hægt er að taka úr þessum leik. Við þurfum bara að vinna úr því fyrir næsta leik sem verður gegn Ými næsta laugardag.

Við viljum líka þakka áhorfendum sem komu og studdu vel við bakið á okkur í leiknum. Það var virkilega gaman og frábær stemming.







Takk fyrir okkur.

Skrifað 7.6.2010 kl. 1:05 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.6.2010

Hópurinn fyrir KB leikinn

Hópurinn fyrir KB leikinn er eftirfarandi:

Arnar Dóri Ásgeirsson
Aron Baldursson
Birkir Freyr Baldursson
Gunnlaugur Smárason
Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson
Heimir Þór Ásgeirsson
Hilmir Hjaltason
Hinrik Konráðsson
Hrannar Már Ásgeirsson
Ingi Björn Ingason
Jón Frímann Eiríksson
Jón Steinar Ólafsson
Ragnar Smári Guðmundsson
Tómas Freyr Kristjánsson
Tryggvi Hafsteinsson
Viktor Örn Jóhannsson

Þetta eru þeir 16 sem fara á skýrslu.



Svo er létt æfing á morgun, væntanlega kl 20 en það verður nánar auglýst á morgun.

Skrifað 3.6.2010 kl. 21:27 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

31.5.2010

Stífar æfingar

Það verða stífar æfingar út vikuna og reiknum við með að þær verði alltaf kl 18 á vellinum. Fyrsti heimaleikurinn er á laugardaginn og mikil tilhlökkun í hópnum. Tryggvi er búinn að vera sem óður maður að dansa fugladansinn alla helgina, svo mikil er tilhlökkunin.
Jón Frímann skellti sér í smá pásu frá sjónum og notaði þá pásu til að fara í golf.

Tryggvi stígur fugladansinn af miklum móð


Viktor og Heimir taka teygjur saman.


Ari Bent fær að finna fyrir því eftir skot frá Inga Birni.


Draumaliðið hans Jóns Steinars


Viggi (á miðri mynd) misskildi æfinguna eitthvað.


Nýju klappstýrur liðsins (Þetta var besti díllinn.)


Meira að segja Haddi ætlar að taka sér pásu frá leikjatölvunni til að mæta á æfingu.

Það er nokkuð ljóst að þetta verður spennandi vika.

Skrifað 31.5.2010 kl. 14:50 af Tommi

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.5.2010

6-0 tap

Þá erum við búnir að spila fyrsta leikinn í 3 deildinni og ætli máltækið "fall er fararheill" eigi ekki bara ágætlega við núna. Við vorum gjörsamlega á hælunum allan leikinn fyrir utan c.a. 30 mín í fyrri hálfleik þar sem við náðum að spila ágætlega. Annars var þetta bara lélegt. Reyndar var sigur Stólanna full stór þó að hann hafi verið verðskuldaður. Amk þrjú mörk sem voru eftir algjöran klaufaskap hjá okkur. Nú er bara að girða sig í brók og taka á því í næsta leik sem verður 5. júní næstkomandi.




Myndir fengnar að láni af www.tindastoll.is

Byrjunarliðið:
Viktor í marki
Ingi B í hægri bak
Haddi í vinstri bak
Tryggvi sweeper
Aron og Ragnar miðverðir
Jón Steinar hægri kantur
Axel vinstri kantur
Hrannar og Heimir á miðju
Arnar Dóri frammi

Bekkur:
Tommi
Gulli
Árni Þór
Runni
Hinni K

Skrifað 22.5.2010 kl. 23:14 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

20.5.2010

Tindastóll - Grundarfjörður

Hópurinn fyrir leikinn á móti Tindastól.

Viktor Örn Jóhannsson
Tryggvi Hafsteinsson
Hinrik Konráðsson
Runólfur Jóhann Kristjánsson
Tómas Freyr Kristjánsson
Ingi Björn Ingason
Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson
Ragnar Smári Guðmundsson
Aron Baldursson
Hrannar Már Ásgeirsson
Arnar Dóri Ásgeirsson
Gunnlaugur Smárason
Árni Þór Björnsson
Jón Steinar Ólafsson
Axel Freyr Eiríksson
Heimir Þór Ásgeirsson

Það eru afgerandi líkur á því að við þurfum að fara á einkabílum.

Þeir sem eru utan hóps er velkomið að koma með okkur og stjórna af línunni, vera sjúkraþjálfarar og þess háttar störf. Látið okkur bara vita sem fyrst.

Stefnt er að því að leggja af stað kl 7:30 á laugardagsmorgun frá Samkaup.

Þessir verða líklega í eldlínunni.

Áfram Grundarfjörður.

Skrifað 20.5.2010 kl. 23:06 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

18.5.2010

Æfingar

Síðastliðin helgi var gríðarlega erfið. Þjálfarinn lét mannskapinn æfa stíft alla helgina í refsingarskyni fyrir að hafa dottið út úr VISA bikarnum á móti Aftureldingu... Þetta tók gríðarlega á en á móti kemur að vonandi verðum við í betra standi á móti Tindastól um næstu helgi.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá hinum erfiðu æfingum helgarinnar...


Jón Frímann á hlaupum


Viktor hnykklar vöðvana


Ragnar Smári í tröppuhlaupi


Viggi prófaði nýja aðferð við knattrak

Það gekk mikið á um helgina.

Skrifað 18.5.2010 kl. 15:03 af Tommi

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.5.2010

Æfingar

Við erum byrjaðir að æfa á Grundarfjarðarvelli og það er SWEEEET

Æfingaleikur á morgun kl 19:00 á móti 2 flokk Snæfellsnes/Skallagrím samstarfinu. Leikurinn verður spilaður á Hellissandsvelli og þar fá nýjir leikmenn að spreyta sig, sýna sig og sanna.



Góðar stundir

Skrifað 12.5.2010 kl. 10:32 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

10.5.2010

Tap í Visabikarnum

Afturelding - Grundarfjörður 3-0

Vörn, vörn og vörn var þema dagsins á laugardaginn þegar Grundarfjörður mætti í sinn fyrsta opinbera leik í sumar. Liðið var mætt í Mosfellsbæinn og átti að mæta þar sterku 2 deildarliði Aftureldingar.

Viktor byrjaði í marki
Ingi Björn hægri bak
Haddi vinstri bak
Tryggvi sweeper
Jón Frímann og Aron miðverðir
Gunnlaugur hægri kantur
Heimir Þór vinstri kantur
Ragnar Smári og Hrannar á miðjunni
Hilmir var einn frammi.

Bekkurinn:
Arnar Dóri sem meiddist í upphitun og þurfti því að fara á bekkinn
Tommi
Hinni K
Hinni J
Axel Freyr

Við byrjuðum með því að sitja aftarlega og reyna að verjast eftir megni. Tryggvi var aftastur og það var alveg að virka þegar hann sópaði upp því sem fór fram hjá Jóni og Aroni. Afturelding var ekki að fá nein afgerandi færi og það sem kom á markið náði Viktor að taka.
Afturelding skoraði svo þegar rétt tæpur hálftími var liðinn af leiknum. Þeir fengu aukaspyrnu rétt fyrir utan teig og dómarinn gaf merki að hann myndi flauta þegar mátti framkvæma aukaspyrnuna. Leikmaður Aftureldingar virti það að vettugi og tók spyrnuna án þess að dómarinn hafi gefið merki og á óskiljanlegan hátt lét dómarinn markið standa. En Grundarfjörður hélt sínu leikskipulagi og við fengum 2 ágætis færi þegar skammt var eftir af hálfleiknum en því miður náðu Hilmir og Heimir ekki að setjann í það skiptið.

Í seinni hálfleik var það sama uppá teningnum hjá okkur. Axel kom inná fyrir Hadda í vinstri bak. Verulega var farið að draga af okkar mönnum þegar líða tók á hálfleikinn og augljóst að það vantaði töluvert uppá formið hjá okkar strákum.
Afturelding bætti svo við 2 mörkum undir lok leiksins og leikurinn fór 3-0

Aron Baldurs í hasarnum.

Við getum samt gengið stoltir af velli eftir þennan leik enda um töluvert sterkara lið að ræða.

Næsti leikur okkar er 22 maí á Sauðarkróki þar sem við mætum Tindastól í fyrsta deildarleik ársins.

Svo verður æfingaleikur við 2 flokk Snæfellsnes/Skallagríms fimmtudaginn 13 maí næstkomandi.


Skrifað 10.5.2010 kl. 8:45 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

7.5.2010

Hópurinn

16 manna hópurinn sem fer á skýrslu í Aftureldingarleiknum:

Viktor Örn Jóhannsson
Hinrik Konráðsson
Ingi Björn Ingason
Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson
Hinrik Jóhannesson
Jón Frímann Eiríksson
Aron Baldursson
Gunnlaugur Smárason
Tryggvi Hafsteinsson
Tómas Freyr Kristjánsson
Heimir Þór Ásgeirsson
Ragnar Smári Guðmundsson
Hrannar Már Ásgeirsson
Arnar Dóri Ásgeirsson
Axel Freyr Eiríksson
Hilmir Hjaltason

Alla aðra hvetjum við til að mæta og taka til við stuðning og önnur störf á leikskýrslu eins og sjúkraþjálfarastarf, vatnsberastarf osfr.


Það mun væntanlega mæða mikið á þessum mönnum á morgun.

Svo verður tekið á því.

Góðar stundir.

Skrifað 7.5.2010 kl. 20:17 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

6.5.2010

Visa bikarinn

Nú styttist óðum í fyrsta opinbera leik Grundarfjarðarliðsins en á laugardaginn næstkomandi mun liðið ganga bísperrt í splunkunýjum búningum inná gervigrasið í Mosfellsbæ til að etja kappi við Aftureldingu í Visa bikarkeppni KSÍ. Þetta mun verða söguleg stund en Afturelding leikur í 2 deild eftir að hafa fallið úr þeirri fyrstu í fyrra. Því verður um erfiðan leik að ræða en Tommi, Jón Frímann og félagar munu eflaust taka á öllu sem þeir eiga til að gera íbúa Grundarfjarðar stolta.
Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið til að koma og kíkja á leikinn og hvetja okkur til dáða því ekki veitir okkur af stuðningi ykkar í sumar.



AFTURELDING - GRUNDARFJÖRÐUR
Varmárvöllur kl 14:00
laugardaginn 8. maí.

Allir að mæta.

Skrifað 6.5.2010 kl. 13:49 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.5.2010

5 DAGAR

5 dagar í fyrsta leik og stemmarinn er að gera menn geðveika.



Hér eru Tommi og Tryggvi að stytta sér stundir í kjallaranum hjá Tryggva. Greininlega mjög spenntir....

Skrifað 3.5.2010 kl. 13:11 af Jón Frímann

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

1.5.2010

Enginn leikur

Vegna prófalesturs og manneklu verðum við því miður að blása leikinn við Val B af sem vera átti á morgun.

Næsti leikur er því við Aftureldingu í Visa bikarnum þann 8 maí næstkomandi.


Góðar stundir.

Skrifað 1.5.2010 kl. 19:35 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

29.4.2010

Tilkynning

***BREAKING NEWS***

Tilkynning frá meistaraflokki Grundarfjarðar

Tryggvi Hafsteinsson hefur látið af störfum sem þjálfari meistaraflokksins. Þetta er gert í fullri sátt við stjórn og leikmenn. Tryggvi mun halda áfram að sinna skyldum sínum sem leikmaður liðsins og leggja sig allan fram fyrir liðið.

Ástæða afsagnar Tryggva er vegna mikils annríkis sem hefur verið hjá honum undanfarið. Tryggvi er metnaðarfullur maður og ef hann nær ekki að sinna þjálfarastarfi sínu 100% þá vill hann frekar að einhver annar taki við.

Tómas Freyr Kristjánsson formaður meistaraflokksins og Jón Frímann Eiríksson aðstoðarþjálfari munu taka við stjórninni af Tryggva.


Það er búið að vera brjálað að gera hjá T-Bone

Skrifað 29.4.2010 kl. 14:47 af Tommi

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

29.4.2010

Leikur á sunnudag

Sunnudaginn 2 maí fer fram leikur Grundarfjarðar og Vals/Fame að Hlíðarenda. Leikurinn hefst kl 17:00 að staðartíma. Þetta er í annað skiptið sem þessi lið mætast. Síðast fór Grundarfjörður með 5-0 sigur. Hvað gerist á sunnudaginn???

Þetta verður væntanlega síðasti æfingaleikur fyrir Visabikarinn sem verður 8 maí. Nú þarf Tryggvi að fínstilla blöðruskotin sín.

Skrifað 29.4.2010 kl. 9:42 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

20.4.2010

Pub Quiz í kvöld

Nú er síðasti séns til að láta ljós sitt skína á pub quiz hjá Meistaraflokknum því að síðasta Pub Quiz vetrarins er á dagskrá í kvöld kl 21:00 á Kaffi 59. Það kostar aðeins 500 kr. að taka þátt og rennur allur ágóðinn beint til Meistaraflokks Grundarfjarðar í knattspyrnu. Þemað í kvöld er óvænt en óhætt er að búast við miklu fjöri. Láttu sjá þig.

 

Meistaraflokksráð 

Skrifað 20.4.2010 kl. 10:04 af Tommi

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.4.2010

Tap fyrir utandeildarmeisturunum

Það var fámennur hópur sem mætti á Ásvelli síðasta laugardag. Mikið um forföll í liðinum og því rétt náðum við í hóp. Vorum 1-0 yfir í hálfleik en fengum á okkur 3 mörk í seinni hálfleik og því endaði leikurinn 3-1

Grundarfjörður - Kuhmo Rovers 1-3
Hrannar Már Ásgeirsson

Byrjunarliðið:
Viktor í marki
Siggi Jóns hægri bak
Ragnar Smári vinstri bak
Aron og Anton miðverðir
Steini hægri kantur
Tryggvi vinstri kantur
Hrannar og Arnar Dóri á miðju
Heimir fyrir framan
Himmi frammi

Bekkur:
Runni
Úlfar
Iddi

Skrifað 20.4.2010 kl. 10:00 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

14.4.2010

Elinbergur Sveinsson gengur til liðs við Grundarfjörð (Staðfest)

Elinbergur Sveinsson gengur til liðs við Grundarfjörð (Staðfest)

Enn lætur T-Bone þjálfari til sín taka á leikmannamarkaðnum og hefur nú bætt einum gullmolanum við leikmannahópinn... Eftir langar og strangar samningaviðræður við Begga Sveins náðust loks samningar rétt undir miðnætti í gær. Það var víst skúffukaka þjálfarans sem gerði gæfumuninn. Aðspurður sagðist Beggi ekki hafa smakkað aðra eins skúffuköku í háa herrans tíð og ef þetta væri það sem koma skal úr eldhúsi þjálfarans þá væri engin spurning um að slá til og ganga til liðs við Grundarfjörð.


Beggi og Dabbi Hlíðkvist sáttir með skúffukökuna.

Elinbergur Sveinsson

Skrifað 14.4.2010 kl. 8:30 af Tommi

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.4.2010

Æfing í dag

Æfing á sparkvellinum kl 17:30 í dag.

T-bone sýnir létt dansspor í hléi.


Skrifað 13.4.2010 kl. 14:28 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

11.4.2010

Sigur á móti Kormáki

Grundarfjörður og UMF Kormákur frá Hvammstanga áttust við í vináttuleik í Akraneshöllinni í dag. Leikurinn fór 4-1 Grundarfirði í vil og skoruðu þeir Tryggvi sem var með 2 mörk, Axel Freyr og Heimir Þór mörk Grundarfjarðar.

Byrjunarliðið:
Viktor í marki
Ingi Björn hægri bak
Haddi vinstri bak
Aron Baldurs og Beggi Sveins miðverðir
Hinni hægri kantur
Axel vinstri kantur
Tryggvi og Hrannar á miðju
Heimir fyrir framan þá
Arnar Dóri frammi.

Bekkur:
Þorri
Batti
Runni
Gulli Smára
Tomasz Wayer

Skrifað 11.4.2010 kl. 16:01 af Tommi

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

10.4.2010

Leikur á sunnudag

Grundarfjörður og UMF Kormákur frá Hvammstanga eigast við í æfingaleik sem fram fer í Akraneshöllinni á sunnudaginn kl 13:00.

Það verður gaman að sjá hvað T-Bone og félagar gera gegn villtum Hvammstangabúum.

Skrifað 10.4.2010 kl. 0:18 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

8.4.2010

Pub Quiz í kvöld

PUB QUIZ nr 15

Pub quiz í kvöld kl 21:00 á Kaffi 59

Verð aðeins 500 kr.

Allur ágóði rennur til Meistaraflokks karla í knattspyrnu.


Skrifað 8.4.2010 kl. 11:43 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

7.4.2010

Nú hefst alvaran

Nú eru páskarni liðnir með sínu súkkulaðiáti og allsherjar vitleysu. Nú tekur við síðasti mánuður fyrir mót þannig að nú þurfum við að fara að taka á því. Nú þurfum við að taka stífar æfingar í apríl svo að menn komi kraftmiklir til leiks þann 8 maí en þá er fyrsti leikur tímabilsins við Aftureldingu í Visa bikarnum.

Mr T-Bone er akkúrat í þessum töluðu orðum að hvíla sig fyrir átökin og úthugsa einhverjar svaðalegar æfingar til að æfa þrek og þol.

Spurning um að byrja herlegheitin í dag með útiæfingu á sparkvellinum kl 17:30 og taka svo Man Utd - Bayern á eftir...


Skrifað 7.4.2010 kl. 10:45 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

28.3.2010

Tap fyrir FC Hjörleif

FC Hjörleifur sem er utandeildarlið af höfuðborgarsvæðinu, og Grundarfjörður mættust í æfingaleik á Þróttaravellinum síðasta föstudagskvöld.

Byrjunarlið Grundarfjarðar
Dabbi W í marki
Ingi Björn hægri bak
Axel vinstri bak
Jón Frímann og Aron miðverðir
Tryggvi Hægri kantur
Siggi Víðis vinstri kantur
Hrannar, Heimir og Ragnar Smári á miðju
Arnar Dóri frammi

Áttum ágætis fyrri hálfleik og vorum undir 3-2 fyrir einskæran klaufaskap. Svo í seinni hálfleik þá gekk ekkert upp hjá okkar mönnum og hálfleikurinn einkenndist af rifrildi, tuði og vitleysu. Eitthvað sem við þurfum að taka í naflaskoðun hjá okkur.

FC Hjörleifur - Grundarfjörður 6-3
Heimir 2 og Arnar Dóri

Skrifað 28.3.2010 kl. 15:54 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

25.3.2010

FC Hjörleifur - Grundarfjörður

Á morgun föstudag eigast við FC Hjörleifur og Grundarfjörður í æfingaleik. Leikurinn verður spilaður á gervigrasinu í Laugardal og hefst kl. 20:00. Mæting fyrir leikmenn er kl 19:00 þar sem að T-Bone mun tilkynna liðið.

Svo kynnum við til leiks splunkunýjan búning meistaraflokks Grundarfjarðar. Hann er alveg geysifallegur eins og þjálfarinn sjálfur eins og glöggt má sjá á meðfylgjandi mynd.

T-Bone í nýja búningnum.

Stay tuned.

Skrifað 25.3.2010 kl. 8:48 af Landlordinn hans Tryggva

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

21.3.2010

Valur/Fame - Grundarfjörður

Grundarfjörður spilaði seinni leik sinn þessa helgina í dag á móti b liði Vals sem samanstendur af ungum og gömlum völsurum ásamt hluta af utandeildarliðnu FC Fame.

Byrjunarliðið:
Viktor í marki
Ingi Björn hægri bak
Hinni Rauði vinstri bak
Jón Frímann og Ragnar Smári miðverðir
Tommi hægri kantur
Jón Steinar vinstri kantur
Hrannar og Tryggvi á miðju
Heimir fyrir framan miðju
Arnar Dóri frammi

Bekkur:
Runni
Eyþór

Leikurinn fór fram á gervigrasvellinum að Hlíðarenda í strekkings vindi.

Leikurinn var ekki gamall þegar Tryggvi smellti honum fyrir utan teig og boltinn lá í netinu. 1-0. Við vorum að spila sæmilega og Valsararnir voru svolitlir klaufar fyrir framan markið en voru samt ekki að skapa sér mörg færi. Skömmu síðar á Jón Steinar flotta fyrirgjöf frá vinstri sem ratar beint á kollinn á formanninum og þaðan í netið. 2-0 og brosið sem breiddist yfir andlit formannsins verður lengi í minnum haft. Þannig var staðan í hálfleik og sama lið byrjaði síðari hálfleikinn.

Það var svolítið liðið á síðari hálfleikinn þegar Jón Frímann stangar boltann í netið og kemur okkur í 3-0. Skömmu síðar er hinn spengilegi Eyþór að dansa með boltann inná vítateig og rennir honum á Heimi Þór sem skorar af öryggi og staðan orðin 4-0. Þegar lítið er eftir af leiknum á þjálfarinn hann Tryggvi svo skot af löngufæri sem virtist fara í gegnum markmanninn hjá þeim. Enginn skilur hvernig hann fór að því að skora en markið var staðreynd og Tryggvi bætti sínu öðru marki við og fimmta marki Grundarfjarðar og þannig var staðan þegar góður dómari leiksins flautaði af.

Fínn sigur staðreynd og næsti leikur er föstudaginn 26 mars á Þróttaravelli.

Skrifað 21.3.2010 kl. 23:10 af Tommi

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.3.2010

Tap

Við töpuðum 3-1 fyrir Þrótti Vogum en þrátt fyrir það þá voru mjög margir jákvæðir punktar á leik okkar manna. Þrisvar sinnum þurftu Þróttarar að bjarga á línu ásamt því að við áttum fjöldann allan af færum. Við vorum að spila sæmilega í þessum leik og því horfum við bjartsýnir fram á veginn.


Byrjunarliðið:
Viktor í marki
Ingi Björn hægri bak
Stebbi vinstri bak
Jón Frímann og Aron miðverðir
Jón Steinar hægri kantur
Tryggvi vinstri kantur
Hrannar Már og Ragnar Smári á miðju
Heimir Þór fyrir framan miðju
Arnar Dóri frammmi

Bekkur:
Gunnlaugur Smára
Tommi
Hinni Rauði
Batti

Góðar stundir.

Skrifað 20.3.2010 kl. 15:54 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

18.3.2010

2 æfingaleikir um helgina

Það verður nóg að gera hjá Meistaraflokki Grundarfjarðar um helgina. 2 leikir á dagskrá þannig að menn fara væntanlega örþreyttir inní næstu viku.

Annað kvöld er leikur við Þrótt Vogum á Ásvöllum í Hafnarfirði og hefst hann kl 21:30

Lið Þróttar Vogum á góðri stundu

Svo á sunnudaginn er leikur kl 17:00 við Val/Fame og verður hann leikinn að Hlíðarenda.

Það verður því nóg að gera hjá Tryggva og félögum um helgina.

Góðar stundir.

Skrifað 18.3.2010 kl. 11:51 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

14.3.2010

Jafntefli

Við spiluðum í dag við BÍ frá Ísafirði í hörkuleik sem fram fór í Kórnum. Leikurinn fór 3-3. BÍ komst í 1-0 í fyrri hálfleik með þrumuskoti fyrir utan teig. Þá tók þjálfarinn til sinna ráða og jafnaði metin í 1-1 eftir að Heimir Þór hafði sent gullsendingu inn fyrir vörnina sem að Tryggvi kláraði vel. Skömmu síðar átti Tryggvi sendingu á Arnar Dóra sem skoraði laglegt mark og kom okkur í 2-1 og þannig var staðan í hálfleik. Rétt áður en flautað var til hálfleiks sauð allt uppúr og nokkrir leikmenn lentu í smá orðaskaki en það leystist nú allt farsællega.

BÍ komu grimmir til leiks í seinni hálfleik og jöfnuðu metin í 2-2 og þannig var staðan í dágóða stund. Þá fengum við aukaspyrnu af 35 metra færi og á meðan BÍ er að stilla upp vegg rennir Ragnar Smári boltanum á Tryggva sem leggur hann fyrir sig og hamrar í átt að marki. Boltinn dettur niður rétt fyrir framan markmanninn og þaðan í netið. Tryggvi vill meina að þetta hafi verið að minnsta kosti af 40 metra færi en Heimir segir að þetta hafi verið blöðrubolti af 20 metra færi. Við látum það kyrrt liggja en markið stóð engu að síður og staðan orðin 3-2 okkur í vil. Skömmu síðar jafnaði BÍ metin og þar við sat. Ágætur leikur af okkar hálfu og þjálfarinn heilt yfir sáttur.

Byrjunarliðið:
Viktor í marki
Ingi Björn í hægri bak
Styrmir í vinstri bak
Jón Frímann og Aron miðverðir
Tryggvi á hægri kanti
Axel á vinstri kanti
Hrannar og Ragnar á miðju
Heimir þar fyrir framan
Arnar Dóri frammi

Bekkur:
Tommi
Hinni Rauði
Runni
Haddi
Kári Viðars


Tryggvi var með tvö mörk í dag.

Skrifað 14.3.2010 kl. 21:12 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.3.2010

Hópurinn fyrir sunnudaginn

Hópurinn sem á að mæta í leikinn á sunnudaginn... Mæting kl 12:30 í Kórnum.

Arnar Dóri Ásgeirsson
Aron Baldursson
Axel Freyr Eiríksson
Elínbergur Sveinsson
Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson
Heimir Þór Ásgeirsson
Hinrik Jóhannesson
Hinrik Konráðsson
Hrannar Már Ásgeirsson
Ingi Björn Ingason
Jón Frímann Eiríksson
Kári Viðarsson
Ragnar Smári Guðmundsson
Runólfur Jóhann Kristjánsson
Styrmir Karlsson
Tómas Freyr Kristjánsson
Tryggvi Hafsteinsson
Viktor Örn Jóhannsson

Þetta er hópurinn sem er boðaður í leikinn. Eins og áður sagði er mæting kl 12:30 í Kórnum. Þeir sem þurfa far frá Grundarfirði þurfa að hafa samband við okkur sem fyrst.


Skrifað 12.3.2010 kl. 14:24 af Tryggvi

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

10.3.2010

Helgin

Það verður einn leikur um helgina og það er leikur BÍ Bolungarvíkur og Grundarfjarðar í Kórnum á sunnudaginn kl. 13:30

Vonandi mæta sem flestir til að hvetja okkur enda er BÍ í 2 deildinni og því um feikisterkt lið að ræða. Þjálfari BÍ er Alfreð Elías Jóhannsson sem spilaði með Víking Ól í nokkur ár við góðan orðstír.

Sjáumst í Kórnum á sunnudaginn.

Skrifað 10.3.2010 kl. 8:39 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

4.3.2010

Grundarfjörður á fotbolti.net

Frétt af fotbolti.net

3.deild: Hvað er að frétta af Grundarfirði?
Mynd: Grundarfjörður
Tómas Freyr Kristjánsson.
Mynd: Grundarfjörður
Mynd: Grundarfjörður
Tryggvi Hafsteinsson þjálfari.
Mynd: Grundarfjörður
Liðurinn "Hvað er að frétta" hefur göngu sína að nýju í dag. Þar er kíkt á stemninguna hjá liðunum í fyrstu, annarri og þriðju deild karla og verður liðurinn á dagskrá reglulega næstu mánuðina.

Það er ekki úr vegi að nýtt lið á Íslandsmótinu ríði á vaðið í "Hvað er að frétta?" í ár en Grundarförður verður með lið í þriðju deildinni í sumar.

Tómas Freyr Kristjánsson svaraði nokkrum spurningum fyrir Grundfirðinga.

Hvernig er stemningin hjá Grundarfirði?
Hún er bara nokkuð góð þessa dagana. Við erum að vinna í því að koma strákunum í form fyrir sumarið. Við erum búnir að spila tvo æfingaleiki og erum að vinna í því að fá fleiri. Hópurinn hjá okkur er að myndast en hann er að mestu byggður upp af strákum héðan af nesinu þó að sumir þeirra séu búsettir í Reykajvík. Þetta lítur ljómandi vel út.

Hvernig er liðið skipað?
Eins og ég sagði þá er liðið mestmegnis skipað af strákum sem eiga rætur héðan af nesinu. Svo eru nokkrir sem hafa verið að spila með Víking Ólafsvík en þurft að hætta þar vegna vinnu eða annara anna. Tryggvi Hafsteinsson hefur tekið við þjálfuninni og er að fá stráka sem voru hættir að spila, til að taka fram takkaskóna aftur. Strákar eins og Ragnar Smári og Hrannar Már Ásgeirsson sem gerðu það gott með Víkingi Ól fyrir nokkrum árum.

Er mikill fótboltaáhugi á Grundarfirði?
Fótboltaáhuginn er mikill hér og hefur aukist eftir að við fórum af stað með þetta. Flestir ungir krakkar æfa og spila fótbolta með Snæfellsnessamstarfinu sem er sameinað lið í öllum yngri flokkunum á Snæfellsnesi. Svo heyrir maður líka á fólkinu hérna í Grundarfirði að það er töluverður spenningur að geta mætt á Grundarfjarðarvöll og horft á fótboltaleiki næsta sumar.

Hvernig er undirbúningstímabilinu háttað hjá ykkur?
Við höfum verið að æfa innanhúss í haust en í janúar byrjuðum við að hlaupa úti og vera með æfingar á sparkvellinum. Tíðin hefur verið mjög góð í janúar og febrúar þannig að við höfum getað æft vel. Svo spiluðum við fyrsta æfingaleikinn 5 febrúar síðastliðinn við KFK og svo spiluðum við leik við Augnablik þann 27 febrúar. Svo förum við að keyra meira á æfingaleiki núna í mars og apríl ásamt því að vera duglegir að hlaupa og æfa.

Hefur þú verið sáttur við spilamennskuna í æfingaleikjum til þessa?
Já þetta lítur ágætlega út. Við töpuðum reyndar fyrir KFK 5-3 en við vorum að spila fínan bolta framan af í þeim leik. Svo áttum við ágætis leik við Augnablik sem við unnum 2-1 þó að aðstæður hafi ekki verið uppá sitt besta enda var sá leikur spilaður úti. Heilt yfir höfum við verið sáttir við þetta.

Hver eru markmið ykkar fyrir sumarið?
Markmiðin eru fyrst og fremst að ná fínum úrslitum í sumar. Við teljum okkur vera með fínt lið sem gæti komið á óvart. Svo er náttúrulega megin markmið að hafa rosalega gaman að þessu og mynda stemmingu í bænum yfir liðinu og heimaleikjum. Þetta verður gaman.

Komdu með eina skemmtilega staðreynd um félagið sem fólk veit ekki um:
80% af liðinu eru uppaldir Grundfirðingar eða hafa mjög sterka tengingu við Grundarfjörð.

Eitthvað að lokum?
Ég vil bara þakka öllum Grundfirðingum og velunnurum liðsins fyrirfram fyrir stuðninginn í sumar. Stefnan er sett á að hafa skemmtilega umgjörð í kringum liðið og heimaleikina svo við fáum sem flesta á völlinn. Áfram Grundarfjörður

Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=88094#ixzz0hDhksvRi



Skrifað 4.3.2010 kl. 14:56 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

1.3.2010

Fleiri æfingaleikir á næstunni

Nú er búið að negla niður æfingaleik við Alfreð og félaga í BÍ Bolungarvík sunnudaginn 14 mars kl 13:30 í Kórnum. Einnig er verið að vinna í því að fá æfingaleik föstudagskvöldið 12 mars við Þrótt Vogum í Reykjaneshöllinni en það er allt í vinnslu ennþá. Svo er spurning um helgina 5-7 mars en verið er að athuga með mótherja og völl.

Leikmenn BÍ-Bolungarvíkur á góðri stund.

Skrifað 1.3.2010 kl. 19:41 af Tommi

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.2.2010

Grundarfjörður - Augnablik 2-1

Við strákarnir hérna fyrir vestan rifum okkur upp fyrir allar aldir og hópuðumst í hópferðarbílinn fyrir ferðina suður. Okkur leist ekkert sérstaklega vel á veðrið en lögðum samt af stað með góða skapið.

Svo var mætt á Ásvelli og ástandið á vellinum var ekkert sérstakt en slapp þó til þegar búið var að sópa frá línunum.

Byrjunarliðið var þannig skipað:
Viktor stóð í markinu
Ingi Björn var hægri bak
Hinni Rauði vinstri bak
Aron Baldurs og Jón Frímann voru miðverðir
Tommi hægri kantur
Tryggvi vinstri kantur
Hrannar og Styrmir voru á miðjunni.
Ragnar Smári fyrir framan miðju
Arnar Dóri á toppnum.

Bekkurinn:
Atli Kristins
Runni
Batti
Þorri
Axel

Við byrjuðum með vindi og vorum með smá hríð í bakið fyrstu tuttugu mínúturnar eða svo. Við pressuðum á þá nánast allan fyrri hálfleikinn og ég held að þeir hafi átt c.a. eina sókn. Viktor hafði amk mjög lítið að gera í fyrri hálfleik. Fljótlega í leiknum fengum við aukaspyrnu í skotfæri. Tryggvi stillti sér upp og bjuggust allir við skotinu. Arnar Dóri hafði þá laumað sér bak við vegginn og Tryggvi renndi boltanum beint á hann og Dóri smurði hann í stöngina nær og inn. 1-0.
Fljótlega eftir það sendi Tryggvi eitraða sendingu inn fyrir vörnina þar sem að Ragnar Smári kom á ferðinni og slapp einn innfyrir. Hann kláraði færið vel og hamraði boltann í netið 2-0. Styrmir fékk líka dauðafæri og svo átti Ragnar skot í stöng. Með smá heppni hefðum við getað verið 4-0 í hálfleik.

Í seinni hálfleik var lagt á ráðin að halda boltanum niðri og gekk það ljómandi vel. Við vorum að fá fín færi í seinni hálfleik þegar Axel var kominn á vinstri vænginn og átti hann marga eitraða spretti. Augnablik minkaði muninn þegar c.a. 20 mín voru eftir og pressuðu þá frekar stíft á okkur en við náðum að halda þetta út. Fyrsti sigurinn okkar saman og þetta var rosalega massívt.

Við vorum að minnsta kosti hressir á leiðinn heim á hópferðabílnum og Siggi Hlö var ánægður með okkur.


Skrifað 27.2.2010 kl. 21:06 af Tommi

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.2.2010

Leikurinn á morgun

Það er áætluð brottför frá Samkaup kl 07:30 í fyrramálið. Vinsamlegast vera mættir fyrir þann tíma. Við þurfum að vera komnir á Ásvelli kl 10:00. Við erum með hópferðabíl í þetta. Hver og einn þarf að koma með 1500 kr í bensínpening.

Hópurinn sem fer frá Grundarfirði er þessi:
Tommi
Jón Frímann
Tryggvi
Ingi Björn
Hinni Rauði
Viktor
Þorri
Benedikt
Axel (frá Borgarnesi)
Runni Kristjáns

Þeir sem eru í Reykjavík:
Ragnar Smári
Arnar Dóri
Hrannar Már
Aron Baldurs
Styrmir Karls
Atli Kristins
Batti Pálma

Muna að koma með sokka, buxur og hlý föt... það verður eflaust kalt. Við spilum í gulu treyjunum aftur. Sokkar og buxur eru frjálst val en fínt að miða við að vera bara í svörtum buxum og gulum sokkum ef þið viljið vera eins og Tommi ofurhetja.

Viðeigandi klæðnaður ;)

Sjáumst eiturhressir í fyrramálið.

Skrifað 26.2.2010 kl. 11:09 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

25.2.2010

Breyting á æfingaleik

Vegna óviðráðanlegra orsaka urðum við að hætta við leikinn á móti Val/Fame sem átti að vera kl 15:00 laugardaginn 27. feb.

En í staðinn er áætlaður leikur við Augnablik þennan sama dag á Ásvöllum í Hafnarfirði kl 11:00.

Semsagt:

Grundarfjörður - Augnablik laugardaginn 27.02 - 2010 kl 11:00 að Ásvöllum.

Þessi kappi mætir víst...


Og þessi líka.


Og líklega þessi líka.

Þetta verður stemming.

Skrifað 25.2.2010 kl. 17:26 af Tommi

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.2.2010

Visa bikarinn

Nú er búið að draga í Visabikarnum og við drógumst á móti Aftureldingu.

Leikurinn verður laugardaginn 8 maí kl 14:00 á Varmárvelli

Afturelding - Grundarfjörður laugardaginn 8 maí kl 14:00

 

Skrifað 25.2.2010 kl. 8:27 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.2.2010

Grundarfjörður - Valur/Fame

Ný styttist í næsta æfingaleik en hann verður næstkomandi laugardag á Hlíðarenda. Þar munu við etja kappi við sameinað lið FC Fame og Vals. Ég veit ekkert um þetta lið nema að ég þekki nokkra stráka úr FC Fame og þeir eru með hörku gott lið og þetta eru allt strákar sem kunna að spila fótbolta og hafa gert saman í mörg ár. Hvernig Valur kemur að þessu hef ég ekki hugmynd um þannig að það verður spennandi að sjá hvernig þetta kemur út.


Grundarfjörður - Valur/Fame laugardaginn 27 febrúar kl 15:00
Gervigrasvöllurinn að Hlíðarenda.

Hvað gera Tryggvi og félagar á laugardaginn???

Skrifað 23.2.2010 kl. 10:17 af Tommi

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.2.2010

Gæi Hadda

Þá er komið að prófílnum hans Gæa Hadda.

Fullt nafn:? Garðar Hafsteinsson             

Aldur? 28 ár

Gælunafn? Gæi

Staða á velli?  Hefur ekki komið til tals, en þar sem ég er markviss og marksækinn með afbrigðum segi ég centerinn

Spilað fyrir Grundarfirði síðan? Hef spilað fyrir Grundarfjörð síðan Viggi var hrjótandi upp á skaga.

Hjúskaparstaða?  Fer eftir því hvenær og hversu mikið ég fæ útborgað.

Hæð? 179 Gullfallegir centemetrar

Þyngd? Hef seinustu árin verið dansandi kringum 93-94 kílóinn, en keypti mér kort í ræktina um daginn sagði gæinn og bara við það fóru 4 kíló, en væntanlega búinn að bæta því á núna,var soldið í kökunum í seinasta túr..

Hvaðan ertu?  Grundargata 29 mótaði mín fyrstu ár en svo fluttist ég að Grundargötu 92 Þar lagði ég grunninn að þeim manni sem ég bý að í dag sem var reyndar á hátindi þokka og hæfileika í kringum fermingu og á jenný margar myndir því til stuðnings. Og held ég að Tommi lumi á einni í veskinu sínu.

Uppáhaldslið í enska boltanum? Man united

Uppáhalds knattspyrnumaður? Nani Og Guðmundur viðar Mete.

Í hvernig fótboltaskóm spilarðu? Nike total90 laser 111-

Uppáhalds drykkur? Bjór og svali

Uppáhalds bíómynd?  Blades of Glory og star wars myndirnar,Borat, og svona myndir þar sem fólk er með ofurkrafta og kann að fljúga .

Uppáhalds sjónvarpsþáttur? Stikklur með ómari Ragnars

Hvað eldaðirðu síðast? Humar og Hámeri

Hvaða tónlist hlustarðu á? Bubba og 50 cent

Uppáhalds vefsíða? Lemonparty.org

Hvaða hljómsveit/tónlistarmann myndir þú helst vilja sjá á sviði? Hljómsveitina sem Gubbi,jón hans og Tommi frá söðulsholti voru í hér í gamla daga.

Uppáhalds staðurinn þinn í öllum heiminum? Krákan

Í hverju varstu lélegur í skóla? EINGU

Vandræðalegasta augnablikið á knattspyrnuvellinum? Í seinasta leik þegar Vigga var skipt inn á, frekar vandræðalegt fyrir þessa annars ágætu íþrótt..

Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Láta hann fara að hlægja-Með því að skipta Vigga inn á

Tekur þú Grundarfjörð fram yfir konuna þína?  Ekki ef það sé útborgunardagur

Grófasti leikmaður Grundarfjarðar? Miðað við seinasta leik.. klárlega Almar

Fyndnasta atvik í leik með Grundarfirði? Frekar húmorslaust lið þegar á heildina er litið þannig að ég segi PASS.

Hefur þú skorað sjálfsmark? Jamm

Mesta steikin í liðinu? Jón frímann bara

Mesti hözzlerinn? Júlli Jobba

Ef þú þyrftir að velja einn til að sofa hjá hver yrði það og afhverju? Tommi jobba yrði fyrir valinu- Af hverju? Hafiði séð þennan fallega munn? Þarf að segja meira

Eitthvað að lokum: Já, von er á skemmtilegri uppákomu sem tengist liðinu en málið er að þetta liggur nú allt hjá Honum Tómasi en við vonum að hann fari nú að gyrða sig í brók og hef ég enga trú á öðru..



Skrifað 22.2.2010 kl. 18:18 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.2.2010

C-Riðill

Þá er riðlaskiptingin klár fyrir sumarið og óhætt að segja að við lendum í erfiðum riðli. Við erum í C-Riðli og hefjum leik á Sauðárkróki 22 maí næstkomandi.


Riðillinn okkar lítur svona út:

Augnablik
Grundarfjörður
KB
Léttir
Skallagrímur
Tindastóll
Ýmir

12 leikir á lið.


Leikirnir okkar eru sem hér segir en þetta er ekki staðfest og gæti því breyst.

Laugardagur 22. maí kl 14:00   Tindastóll - Grundarfjörður -- Sauðárkróksvöllur

Laugardagur 05. júní kl 14:00   Grundarfjörður - KB -- Grundarfjarðarvöllur

Laugardagur 12. júní kl 14:00   Ýmir - Grundarfjörður -- Fagrilundur

Mánudagur 21. júní kl 20:00     Grundarfjörður - Skallagrímur -- Grundarfjarðarvöllur

Föstudagur 25. júní kl 20:00      Léttir - Grundarfjörður -- ÍR völlur

Föstudagur 02. júlí kl 20:00       Grundarfjörður - Augnablik -- Grundarfjarðarvöllur

Laugardagur 10. júlí kl 14:00    Grundarfjörður - Tindastóll -- Grundarfjarðarvöllur

Föstudagur 23. júlí kl 20:00       KB - Grundarfjörður -- Leiknisvöllur

Þriðjudagur 27. júlí kl 20:00      Grundarfjörður - Ýmir -- Grundarfjarðarvöllur

Föstudagur 06. ágúst kl 19:00    Skallagrímur - Grundarfjörður -- Skallagrímsvöllur

Laugardagur 14. ágúst kl 14:00 Grundarfjörður - Léttir -- Grundarfjarðarvöllur

Föstudagur 20. ágúst kl 19:00    Augnablik - Grundarfjörður -- Smárahvammsvöllur

Þetta verður strembið en gaman. Það er alveg klárt.

Skrifað 13.2.2010 kl. 11:35 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.2.2010

Grundarfjörður - KFK (HK3)

Markv: Dabbi Wium
Hægri bak: Ingi Björn
Vinstri bak: Axel Freyr
Miðvörður: Beggi Sveins
Miðvörður: Jón Frímann
Hægri kant: Tryggvi H
Vinstri kant: Hemmi
Miðja: Ragnar Smári
Miðja: Hrannar Már
Aftari sóknarm: Heimir Þór
Fremstur: Semek

Bekkurinn:
Tommi
Rúnar G
Runni K
Gæi Hadda
Viggi Runna
Almar
Hinni J
Haddi





Leikurinn byrjaði ágætlega... við vorum svolítið að reyna að finna okkur í þessu enda í fyrsta skiptið sem við spilum 11 manna bolta saman. Við fengum á okkur mark frekar snemma og var það bölvaður klaufagangur. Þeir fengu hornspyrnu og boltinn barst á óvaldaðan kópavogsbúa sem að skoraði framhjá Dabba.

En við vorum ekki lengi að jafna okkur á því þegar að Hemmi Geir skeiðaði frá kantinum að markinu og smellti blöðrunni með vinstri fæti í markið 1-1

Fljótlega eftir það bað Axel um skiptingu og fór Almar inná í staðinn. Ragnar Smári fór í vinstri bak og Almar á miðjuna. Þannig var í hálfleik.

Í seinni hálfleik kom Almar okkur í 2-1 með góðu skoti rétt fyrir innan vítateig. Þeir jöfnuðu fljótlega og komust svo í 3-2. Skömmu síðar var brotið á Heimi Þór innan vítateigs og steig Heimir sjálfur á punktinn og skoraði af miklu öryggi 3-3.

Eftir jöfnunarmarkið fór þetta svolítið að riðlast hjá okkur. Menn orðnir þreyttir og við byrjaðir að skipta ótt og títt og við það riðlaðist skipulagið aðeins. Fengum á okkur 2 mörk í viðbót en í millitíðinni hafði Dabbi varið vítaspyrnu frá þeim.

Heilt yfir var þetta fínasti leikur og þetta leit ágætlega út fyrir okkur. Þurfum aðeins að bæta úthaldið og spila meira saman. Verið er að vinna í að græja næsta æfingaleik og verður það auglýst þegar þar að kemur.

Svo eru fleiri myndir af leiknum að detta inn svona annað slagið enda ógrynni af myndum sem að hann Jón Pétur tók af leiknum og hefur formaðurinn varla undan að dæla þessu inn.  Við þökkum Jón Pétri kærlega fyrir.


Skrifað 12.2.2010 kl. 8:35 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

8.2.2010

Útihlaup

Það verður útihlaup í kvöld og er mæting kl 19:30 við sparkvöllinn

Svo verður væntanlega tekin létt æfing á eftir.

Ouch

Svo er væntanleg létt leikskýrsla og fullt af myndum sem að hann Jón Pétur tók af leiknum síðastliðin föstudag.

Skrifað 8.2.2010 kl. 11:39 af Tommi

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

6.2.2010

Fyrsti leikurinn

Frétt af www.fotbolt.net

lau 06.feb 2010 08:12 Magnús Már Einarsson,
Æfingaleikur: KFK sigraði Grundafjörð
KFK 5 - 3 Grundarfjörður
1-0 Guðmundur Atli Steinþórsson
1-1 Hermann Geir Þórsson
2-1 Hafþór Jóhannsson
2-2 Almar Björn Viðarsson
3-2 Guðjón Ólafsson
3-3 Heimir Ásgeirsson (Víti)
4-3 Guðmundur Atli Steinþórsson
5-3 Guðmundur Atli Steinþórsson

KFK (HK 3) sigraði Grundarfjörð 5-3 í æfingaleik í Akraneshöllinni í gærkvöldi.

Bæði þessi lið munu spila í 3.deildinni í sumar en Grundfirðingar eru með að nýju eftir langt hlé.

Guðmundur Atli Steinþórsson skoraði þrennu fyrir KFK í gær en hann misnotaði einnig vítaspyrnu í leiknum.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á fotbolti@fotbolti.net.

Read more: http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=86920#ixzz0ekt4sPfY

Skrifað 6.2.2010 kl. 11:52 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

5.2.2010

Leikur í kvöld

Fyrsti æfingaleikur Grundarfjarðar er í kvöld. Þá mætir Grundarfjörður liði HK3 sem er skipað gömlum og nýjum HK kempum sem eru hættir að spila af fullum þunga. Þetta verður án efa athyglisverður leikur og hefur Tryggvi þjálfari valið 18 stráka í verkefnið.

Hópurinn er þessi:

Axel Freyr Eiríksson - leftari
Davíð Hansson Wium - markvörður
Elínbergur Sveinsson - miðvörður
Garðar Hafsteinsson - lukkudýr og verðandi fyrirliði
Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson - sóknarskelfir og pirrari
Heimir Þór Ásgeirsson - sóknarmaður
Hermann Geir Þórsson - sóknartengiliður
Hinrik Jóhannesson - rauðhærður
Hrannar Már Ásgeirsson - miðjumaður
Ingi Björn Ingason - blakvörður
Jón Frímann Eiríksson - varnartröll
Przemyslaw Andri Þórðarson - sóknarmaður
Ragnar Smári Guðmundsson - miðjumaður
Runólfur Kristjánsson - sóknarmaður
Rúnar Geirmundsson - sóknardvergur
Tómas Freyr Kristjánsson - sóknarmaður með áherslu á skalla
Tryggvi Hafsteinsson - kantari og allt múlig maður
Vignir Már Runólfsson - staða ókunn þar sem hann hefur ekki spilað síðan snemma á síðustu öld.

Svona lítur hópurinn út fyrir kvöldið og verður spennandi að sjá hvað þjálfi gerir á móti gríðarsterku liði HK-3.

Við hvetjum alla velunnara liðsins til að mæta í Akraneshöllina kl 20:00 í kvöld og berja goðin augum.

Grundarfjörður mun spila í bláum búningum í kvöld.

Garðar Hafsteinsson er lengst til vinstri á myndinni.



Skrifað 5.2.2010 kl. 9:03 af Tommi

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.2.2010

Þjálfarinn

Hann T-Bone þjálfari er ýmsum eiginleikum gæddur... fyrir utan að vera frábær í fótbolta þá er kappinn víst algjör snillingur á saxafón eins og myndin sannar.

Tryggvi á sínum yngri árum að troða upp með sirkus geira smart

Já hann tryggvi okkar er ekki við eina fjölina felldur eins og máltækið góða gefur til kynna.

Kenny G má fara að vara sig.

Skrifað 3.2.2010 kl. 17:49 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.2.2010

Allt að gerast

Æfing í kvöld... útihlaup og æfing á morgun og svo pub quiz á eftir. Svo er fyrsti æfingaleikur Grundarfjarðar á föstudaginn. Það er allt að gerast þessa dagana. Gott ef að það vottaði ekki fyrir blettaskalla á þjálfaranum.


Svona er þetta

Skrifað 3.2.2010 kl. 14:24 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

2.2.2010

Æfingaleikur

Ný styttist óðum í að við spilum fyrsta æfingaleikinn okkar en hann verður í Akraneshöllinni á föstudaginn kl 20:00. Mikill spenningur er kominn í nýja þjálfarann sem sagðist varla halda vatni yfir þessu. Liðið er óðum að styrkjast þessa daga og allskyns menn hringjandi í T-Bone og heimta að fá að vera með. Tryggvi hefur þurft að vísa mönnum frá... Ekki ómerkari menn hafa þurft frá að hverfa eins og Siggi Jóns, Andy Cole og Alan Shearer. Tryggvi vill frekar treysta á þurfalinginn hann Heimir Þór í framlínunni.

Ástæðan er víst að Shearer er þunnhærðari en formaðurinn.


Andy Cole var súr á svipinn eftir símtalið við T-Bone

Nú verður spennandi að sjá hvaða andlit láta sjá sig í Akraneshöllinni á föstudaginn.

Skrifað 2.2.2010 kl. 10:02 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

28.1.2010

Fastar æfingar

Hinn gríðarfagri þjálfari T-Bone hefur fyrirskipað að negla niður fasta æfingar sem hér segir.

Sunnudagur: Létt skokk og svo bolti í íþróttahúsinu kl 19:30
Mánudagur: Útihlaup og svo bolti á sparkvellinum kl 19:30
Þriðjudagur: Frí
Miðvikudagur: Æfing í íþróttahúsinu kl 20:10
Fimmtudagur: Útihlaup og svo bolti á sparkvelilnum kl 19:30
Föstudagur: Frí
Laugardagur: Frí

Svona er æfingaprógrammið til að byrja með. Líklegt þykir að þjálfi eigi eftir að bæta einhverju við þetta þegar nær dregur vori og við förum að fara alfarið út.

Semsagt skv æfingaplani er útihlaup og bolti á sparkvellinum kl 19:30 í kvöld.

Það er augljóslega stuð að hlaupa.

Skrifað 28.1.2010 kl. 10:18 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

27.1.2010

Grundarfjörður - HK-3

Föstudagskvöldið 5 febrúar næstkomandi mun Grundarfjörður undir stjórn T-Bone hins ógurlega etja kappi við HK - 3 í æfingaleik sem fram fer í Akraneshöllinni kl 20:00. Þetta verður fyrsti æfingaleikur Grundarfjarðar sem undirbýr sig að kappi fyrir átökin í sumar. Allir velkomnir enda hefur heyrst að þjálfarinn muni stíga trylltan dans í hálfleik.

Ætli nýji búningur Grundarfjarðar verði einhvernveginn svona???

Skrifað 27.1.2010 kl. 15:28 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

25.1.2010

Útihlaup

Stefnan tekin á útihlaup í kvöld 19:30. Hittingur við Sparkvöllinn. Tökum púlsinn á þessu í dag hvað veður varðar.



Haddi í síðasta útihlaupi.

Skrifað 25.1.2010 kl. 13:28 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

21.1.2010

Ekkert útihlaup í kvöld

Vegna óhagstæðrar veðurspár höfum við ákveðið að geyma útihlaupið sem átti að vera í kvöld til betri tíma.

Tekið af mbl.is
Veðurstofan spáir því að meðalvindur verði allt að 25 metrar á sekúndu um sunnanvert landið á tímabilinu frá 15 til 18 í dag. Hámarkið verður á Snæfellsnesi frá klukkan 17 til 20.  Veðrinu fylgir gríðarleg úrkoma en það mun ganga hratt nuður.

En við ætluðum einmitt að hlaupa á milli kl 17 og 20 þannig að ef við viljum ekki að Júlli Jobba fjúki út í hafsauga er betra að halda sig heima og borða hollt eins og T-Bone þjálfari er búinn að gefa fyrirmæli um.


En svo var líka hörku æfing í gær... 9 manns á svæðinu og liðin voru þannig að Semek, Tryggvi, Villi Péturs, Hlynur og Júlli Jobba voru á móti Tomma, Heimi, Viktori og Hinna Rauða. og T-Bone og félagar sáu aldrei til sólar þetta kvöld. Hinir voru bara of heitir og þá sérstaklega Rauði sem átti hvern sprettinn á fætur öðrum upp kantinn. Enda var farið að síga illilega í þjálfarann þegar æfingin var að enda og lét hann okkur gera 120 magaæfingar, 60 armbeygjur og 60 bakæfingar og lét okkur svo enda á nettum Mullers æfingum. Flottur hann T-Bone.

T-Bone púllaði þetta múv í eitt skiptið þegar formaðurinn smurði blöðruna í skeytin fram hjá honum.

Skrifað 21.1.2010 kl. 11:36 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

20.1.2010

Æfing í kvöld kl 20:10

Það verður æfing í kvöld kl 20:10 í íþróttahúsinu. Allir hvattir til að mæta nema þeir sem verða fastir í hundaól konunnar sinnar og þurfa að mæta á spilakvöld hjónaklúbbsins.

Góðar stundir.

Skrifað 20.1.2010 kl. 11:03 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

18.1.2010

Útihlaup og bolti í kvöld

Coach T-Bone er búinn að fyrirskipa útihlaup og bolta í kvöld. Hittumst á sparkvellinum kl 20:00 í kvöld. Þar verður púlsinn tekinn á hálku og aðstæðum. Ef hálka er of mikil þá verða væntanlega þol, púl og sprettaæfingar á sparkvellinum sjálfum.

Jón Frímann í síðasta útihlaupi.

Skrifað 18.1.2010 kl. 14:09 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.1.2010

Viðtal vikunnar

Þá er komið að viðtali vikunnar og að þessu sinni er það enginn annar en barítónninn og lappalengjan hann Jón Frímann sem situr fyrir svörum.


Spyrill: Jæja Nonni minn, hvernig hefurðu það þessa dagana?

Jón: Ég er bara helvíti nettur, nýkominn í land, búinn að losa og bara nett sprækur. Ég er einmitt á leiðinni núna til Sillu að pulsa mig upp með Sigga P

Sp: Já þú meinar... ertu mikið í því að pulsa þig upp?

J: Já að sjálfsögðu, eftir að Hemmi Hreiðars lék í pulsu auglýsingunum þá hefur fátt annað komist að í hausnum á mér annað en að pulsa sig reglulega upp.

Sp: Já ok. En hvað ertu annars að brasa þegar þú ert ekki að pulsa þig upp?

J: Var ég búinn að segja þér frá því að ég var markakóngur Tommamótsins í Eyjum árið 1986?

Sp: Ehhh nei, var það?

J: Já já já, kallinn var sjóðandi og skoraði 36 mörk í 5 leikjum, það hafa aðeins 2 pappakassar leikið það eftir, Andri Sigþórs og Eiður Smári.

Sp: Já er það. Og hvað klikkaði hjá þér???

J: Hjá mér??? Ég veit nú ekki betur en að ég sé sá eini sem er að gera eitthvað af viti þessa dagana. Andri er einhver meiðslahrúga á hækjum og Eiður er kominn með legusár á rassgatið af bekkjarsetu. Svo er hann víst á kúpunni kallinn.


Sp: Já þú meinar. En hvernig er stemmingin hjá Grundarfirði þessa dagana?

J: Hún er bara fín held ég. Ég er svo mikið á sjónum að ég næ ekkert að fylgjast almennilega með. Ég held að það sé búið að kaupa búninga og svo heyrði ég eitthvað um að það væri búið að ráða þjálfara en ég sel það ekki dýrara en ég keypti það. En var ég búinn að segja þér frá markametinu mínum frá árinu 1986?

Sp: Já reyndar, rétt áðan. Reiknarðu með að fá að spila í sumar?

J: Já að sjálfsögðu. Þú varst búinn að heyra þetta með markametið er það ekki??? Heldur þú að ef Eiður Smári kæmi hérna að hann væri bara geymdur á bekknum, ó nei. Kallinn verður sjóðandi.

Sp: Og ertu búinn að ræða það við nýja þjálfarann?

J: Nei, ég hef nú reyndar ekki hitt hann en mér finnst þetta vera nokkuð augljóst. Ég á eftir að raða inn mörkunum í sumar.

Sp: En mér skildist á formanninum að þú værir varnartröll, er það ekki rétt eða???

J: Það er nú bara misskilingur. Formaðurinn vill sjálfur vera frammi þess vegna setur hann alltaf sjálfan sig þar og mig í vörn. Ég hef trú á að nýji þjálfarinn lagi þetta.


Sp: Já ok. Þú ert ágætur. Það er semsagt miðvörðurinn fyrir þig.

J: Já ætli það ekki, en ég hleyp fram í hverri einustu aukaspyrnu og hornspyrnu klár í að stanga blöðruna í netið. Það standast fáir karlinum snúning þegar kemur að því að stanga bolta í net. Eins og þarna um árið á Tommamótinu þá skoraði ég 14 af þessum 36 mörkum með hausnum og...

Sp: Já rólegur, við erum ekki að tala um Tommamótið núna, þú veist að það er 2010 núna er það ekki?

J: Jú jú mér finnst þetta bara vera svo svakalegt afrek sem enginn hefur leikið eftir.


Sp: En þessir 2 þarna??? Andri og Eiður Smári?

J: Við teljum þá ekkert með.

Sp: Ég skil. En nú ertu orðinn svolítið framstæður og hefur nú bætt aðeins á þig síðan þú spilaðir síðasta leik... Á ekkert að gera í því???

J: Jú skemmtilegt að þú skyldir minnast á það... ég er einmitt nýbúinn að kaupa mér BELLYMASTER 3000 til að vinna á þessu. Fékk hann á 18990 í sjónvarpsmarkaðnum. Kjarakaup, ég held að hann komi með Ragnar og Ásgeir í kvöld.

Sp: En hvað með hefðbundnar æfingar?

J: Ég hef engann tíma í svoleiðis, alltaf á sjónum, svo ætti tölfræði mín að halda mér í byrjunarliðinu. Ég meina myndir þú geyma mann á bekknum sem hefði skorað 36 mörk í 5 leikjum??? Ég hélt ekki.


Sp: Ja hérna hér. Ég held að þetta sé orðið gott.

J: Er þetta þá búið??? Ég held ég hafi steingleymt að minnast á markametið mitt síðan 1986... viltu ekki heyra um það???


Sp: Bless

J: Halló...... Haaaalllóóóó, er einhver á línunni???

Skrifað 15.1.2010 kl. 23:59 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.1.2010

Fín stemming

Skv öruggum heimildum var gríðarfín stemming í útihlaupinu og í boltanum í gær. Hvort sem að það var útaf fjarveru Heimis Þórs eða fjarveru Tomma eða jafnvel nærveru Jóns Frímanns fáum við ekki úr skorið hér en ég er samt svakalega ánægður með að menn eru að taka þetta af alvöru. Nú smátt og smátt förum við að lengja hlaupin og með hækkandi sól að fjölga útiæfingum. Menn þurfa að gera sér grein fyrir því.

Af búningunum er það að frétta að þeir fóru í merkingu til G3 í gær og verða væntanlega klárir í þessum mánuði. Þó að ég segi sjálfur frá þá er þessi búningur alveg rosalega flottur. Hreint úber sexý alveg hreint...

Næsta æfing er á sunnudag.

Skrifað 15.1.2010 kl. 16:31 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

14.1.2010

Útihlaup í kvöld

Það verður útihlaup í kvöld kl 19:30. Sama fyrirkomulag og síðast. Við hittumst á sparkvellinum, hlaupum, Viktor gefst upp, hlaupum til baka, förum í smá bolta, og svo eitt gott hópknús á liðið.

Þetta getur ekki klikkað.



Tryggvi þjálfari í síðasta útihlaupi.

Skrifað 14.1.2010 kl. 10:02 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

11.1.2010

Útihlaup

Nú er það bara harkan sex hjá nýja þjálfaranum. Það er útihlaup í kvöld og þeir sem skrópa í því geta átt von á því að detta úr náðinni hjá þjálfa og það er eitthvað sem menn vilja ekki. Þess vegna hvet ég alla til þess að mæta og taka smá skokk og svo bolta á eftir í kvöld. Mæting kl 19:30 við sparkvöllinn.


Koma svoooo.

Skrifað 11.1.2010 kl. 13:59 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

7.1.2010

Grundarfjörður á fotbolti.net

mið 06.jan 2010 06:00 Grundarfjörður með lið í þriðju deildinni í sumar
Tryggvi Hafsteinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grundarfjörður hefur ákveðið að senda lið til keppni í þriðju deild karla næsta sumar eftir langt hlé en yfir 20 ár eru síðan liðið var með í deildarkeppni. Grundarfjörður var með í sameinuðu liði undir merkjum HSH árið 2002 og þá tók liðið þátt í VISA-bikarnum 2007 og 2008.

Tryggvi Hafsteinsson, sem hefur leikið með Víkingi Ólafsvík undanfarin ár, verður spilandi þjálfari liðsins.

Tómas Freyr Kristjánsson og Jón Frímann Eiríksson munu einnig þjálfa liðið með honum.

Að sögn Tómasar verður liðið að mestu byggt upp af mönnum frá Grundafirði.

,,Liðið er að mestu byggt upp með strákum hérna heima," sagði Tómas Freyr við Fótbolta.net.

,,Væntanlega koma strákar til okkar sem voru með Snæfell og svo erum við opnir fyrir öllu og aldrei að vita nema við styrkjum okkur með einhverjum strákum fyrir sunnan. En kjarninn verður byggður upp með strákum héðan af svæðinu."



                

Skrifað 7.1.2010 kl. 8:30 af Tommi

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

4.1.2010

Mikið að gerast

Góðan daginn kæru hálsar og gleðilegt nýtt ár.

Það er búið að vera mikið í gangi undanfarna daga. Við vorum að spila í gær á móti Fjölni og tapaðist sá leikur 6-11. Við vorum einfaldlega sprungnir á limminu. Það er nokkuð augljóst að nú þurfum við að taka á því og lýsi ég hér með að undirbúningstímabil okkar er hafið. Á næstu dögum munum við koma með æfingaprógram sem samanstendur af útihlaupum, útiæfingum, inniæfingum og lyftingum til að koma okkur í gírinn fyrir næsta vor. Nýr yfirþjálfari hefur verið kynntur til sögunnar en hann skrifaði loksins undir í gær eftir langar og strangar samningaviðræður. Það tók langan tíma að koma honum í skilning um að við hefðum ekki efni á að kaupa 17 portúgalskar fylgdardömur eins og hann krafðist þannig að hann ákvað að slá til og gera þetta frítt.

Yfirþjálfari Meistaraflokks Grundarfjarðar er enginn annar en Tryggvi Hafsteinsson öðru nafni T-Bone sem mun sigla skútunni á næstu leiktíð og jafnvel lengur. Tryggvi mun verða spilandi þjálfari þar sem að hann er líka hrikalega góður útileikmaður eins og hann segir sjálfur frá. Tryggvi er ættaður úr Grundarfirði og sleit fyrstu takkaskónum sínum hérna á malarvellinum í gamla daga. Hann hefur nánast allan sinn meistaraflokksferil spilað með nágrönnunum í Víkingi Ólafsvík en hefur nú ákveðið að söðla um og gerast spilandi þjálfari hjá uppeldisklúbbnum sínum. Velkominn heim Tryggvi.

Honum til halds og trausts verða þeir Tómas Freyr Kristjánsson og Jón Frímann Eiríksson en þeir hafa nánast enga reynslu af svona við hliðina á T-Bone. Ég hef fulla trú á að þetta verði magnað. Amk þangað til annað kemur í ljós.

Ég treysti því að leikmenn sýni Tryggva þá virðingu sem hann á skilið og fari í einu og öllu eftir fyrirmælum hans.


Fyrir hönd stjórnar.
Tommi

Skrifað 4.1.2010 kl. 15:11 af Tommi

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.12.2009

Gleðileg jól

Meistaraflokkur Grundarfjarðar í knattspyrnu óskar öllum aðdáendum, velferðarmönnum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári... Helst óskar Meistaraflokkurinn þó sjálfum sér farsældar á knattspyrnuvellinum næsta sumar.

Nokkrir leikmenn Grundarfjarðarliðsins. T-Bone er fyrir miðri mynd.
Ljósmynd tekin á síðustu æfingu liðsins fyrir jól

GLEÐILEG JÓL

Skrifað 24.12.2009 kl. 11:56 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.12.2009

Pub Quiz nr 8

Pub Quiz nr 8 í kvöld kl 21:00 á Kaffi 59

Grundfirskt þema.

Skrifað 22.12.2009 kl. 19:17 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

18.12.2009

13-12

Meistaraflokkur Grundarfjarðar skellti sér í bæjarferð til Mosfellsbæjar til að etja kappi við Aftureldingu. Ekki var sú ferð til fjár því að leiknum lauk með naumum sigri Aftureldingar 13-12

Afturelding skoraði fyrsta mark kvöldsins en Grundarfjörður jafnaði fljótlega... Aftur komst Afturelding yfir 2-1 og aftur jöfnum við 2-2. Afturelding komst í 3-2 og enn einusinni jöfnum við 3-3. Afturelding kemst í 4-3 og viti menn... við jöfnum 4-4. Þá settum við í annan gír og komumst í 8-4 og stutt í hálfleik. Afturelding minnkar muninn í 5-8 og 7 sekúndum síðar komumst við í 5-9 og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Í seinni hálfleik skorar Afturelding 3 mörk í röð og minnkar muninn í 8-9. Við komumst í 8-10 og þeir minnka muninn í 9-10. Við setjum þá blöðruna í netið og komumst í 9-11 og enn einu sinni minnka þeir muninn í 10-11. Við skorum 10-12 og þá vorum við eiginlega sprungnir á limminu. Afturelding skorar 2 mörk í röð með stuttu millibili og jafna 12-12 og svo setja þeir sigurmark skömmu fyrir leikslok. 13-12. Við reyndum hvað við gátum en ekkert tókst. Jón Frímann átti  skot í skeytin örfáum sekúndum fyrir leikslok. Enn og aftur er úthaldið að bregðast okkur og voru menn orðnir frekar lúnir í seinni hálfleik. Það verður bara að taka á því í útihlaupunum í janúar og febrúar. En svona var þetta og lítið meira um það að segja fyrir utan að við vorum miklu fallegri á velli.

Hópurinn sem spilaði leikinn.
Viktor var í marki
Hemmi og Ingi Björn í vörn
Semek og Heimir í sókn
Tommi, Jón Frímann og Ingólfur á bekknum.

Myndir frá leiknum:











Skrifað 18.12.2009 kl. 0:43 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

16.12.2009

Afturelding - Grundarfjörður

Leikur Aftureldingar og Grundarfjarðar verður spilaður annað kvöld, fimmtudaginn 17 des. kl 19:00 í íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ.

Allir unnendur liðsins og góðrar knattspyrnu sem eru á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að kíkja á þennan leik og hvetja sína menn... nema að ykkar menn séu Afturelding þá megiði bara vera heima hjá ykkur.

Vonumst til að sjá sem flesta aðdáendur og velunnara liðsins.

Skrifað 16.12.2009 kl. 11:00 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

14.12.2009

Pub Quiz nr 8

Pub Quiz nr 8 sem átti að vera á morgun hefur verið frestað um eina vikur og verður því þann 22 desember kl 21:00 á Kaffi 59

Skrifað 14.12.2009 kl. 8:34 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.12.2009

Leikjum frestað

Öllum futsal leikjum sem vera áttu í dag hefur verið frestað.


Skrifað 13.12.2009 kl. 13:39 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

11.12.2009

Grundarfjörður - Fjölnir

Sunnudaginn 13.des. næstkomandi tekur Grundarfjörður á móti Fjölni í íþróttahúsinu í Ólafsvík kl 15:00 Nú er að duga eða drepast fyrir Grundarfjörð og þurfum við virkilega að taka á því.
Við vonumst til að sjá sem flesta á svæðinu því að það verða 3 leikir á dagskrá þennan dag.

kl 13:30 Víkingur - Fjölnir
kl 15:00 Grundarfjörður - Fjölnir
kl 16:30 Víkingur - Fjölnir

Allir að mæta.

Skrifað 11.12.2009 kl. 14:26 af Tommi

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

7.12.2009

Viðtal vikunnar

Þá er komið að viðtali vikunnar og nú er það enginn annar en forsprakki klúbbsins, formaður UMFG og þjálfari hins geysifagra fótboltaliðs Grundarfjarðar... Tómas Freyr Kristjánsson.


Tommi og Jón Frímann á góðri stund.

Spyrill = Sp
Tommi = T

Sp: Hvernig er stemmingin hjá Grundfirðingum þessa dagana?

T: Heyrðu hún er bara nokkuð góð skal ég segja þér. Við erum byrjaðir að spila í Futsal og okkur hefur gengið ágætlega. Búnir að spila 3 leiki og unnið einn og tapað 2. Svo er alltaf gríðarleg stemming á æfingum þessa dagana. Semek fer hamförum og Heimir og Viktor rífast eins og hundur og köttur ef þeir eru ekki saman í liði. Maður þarf hálfpartinn að bregða sér í hlutverk leikskólakennara þegar kemur að þeim tveim.

Sp: En af þér persónulega? Nú ertu einn eitraðasti hægri fótur heimsálfunnar.

T: Tjah, ég myndi nú ekki taka svo sterkt til orða en ég er klárlega með besta hægri fót Vesturlands og þótt víðar væri leitað. Maður á nú eftir að skrúfa tuðruna í ófá skiptin á kollinn á strákunum næsta sumar. Svo er ég klárlega á því að ég taki allar vítaspyrnur, aukaspyrnur, hornspyrnur og jafnvel innköst næsta sumar. Plús að ég verð alltaf í byrjunarliðinu og alltaf nr 7

Sp: Heldurðu að það eigi ekkert eftir að fara í taugarnar á strákunum?

T: Ef að þeir geta ekki kyngt því þá geta þeir bara farið að spila einhversstaðar annarsstaðar. Hér er nóg af mannskap sem hefur verið að sækja æfingar og svo fjöldinn allur af frábærum leikmönnum sem hafa ekki enn heiðrað okkur með nærveru sinni. Menn eins og Diddi Odds, Gæi Hadda, Dagbjartur og Guðni Hallgríms.


Sp: Ertu nú alveg viss um það. Þetta eru allt menn sem eru komnir af léttasta skeiði. Heldurðu að þeir ráði við þetta?

T: Já klárlega... Þeir eru náttúrulega allir hoknir af reynslu og reynslan telur í þessum bransa. Maður hefur kannski mestar áhyggjur af Gæa Hadda sem er ekki reynslumikill karlanginn.


Sp: Nú er Grundarfjörður búinn að vera að sanka að sér gæða leikmönnum... er von á fleiri kaupum í fjörðinn?

T: Maður er náttúrulega að skoða markaðinn. Ég t.d. skellti mér á fiskmarkaðinn um daginn til að skoða eitt kvikindi og fann þar einn kappa sem heitir Jón Steinar. Aldrei að vita nema að maður splæsi í hann. Þetta er náttúrulega allt saman spurning um tölur. Hef heyrt að hann vilji 4 tyggjópakka á viku og ég þarf að ræða það við gjaldkerann okkar.

Sp: En hvernig eru þessir leikmenn að koma út sem nú þegar eru komnir?

T: Þeir eru nú alveg að standa sig greyin. Við fengum Hermann Geir frá Víkingi Ól en hann olli vonbrigðum á fyrstu æfingu þegar hann þrumaði bolta í belginn á þjálfaranum þannig að við sendum hann á sjóinn. Svo fengum við Heimi Þór úr FH og hann gerir lítið annað en að rífa kjaft. Það þarf að siða hann aðeins til. Svo náttúrulega T-Bone frá Víkingi. Hann er alltaf solid hann T-Bone. Fyrir utan að maður þarf alltaf að eigi í vörina fyrir kappann, annars er hann rokinn eitthvert til að leita sér að tóbaki. Maður verður sérstaklega að vera á tánum hvað þetta varðar.
Svo fengum við frábæran díl hjá Snæfell. Keyptum eitt bretti af leikmönnum á 100 kall og fengum Víking Hermann frítt með. Það munar um það. Palli Margeir hefur augljóslega ekki vitað hvað hann var með í höndunum því að ég sjálfur var í þessum pakka.


Sp: Já svoleiðis. Og hvert er svo stefnan sett? Hvar sérðu liðið eftir c.a. 4 ár

T: Það er nú ekki erfitt að svara þessu. Við stefnum að sjálfsögðu beint á toppinn. Ég sé okkur t.d. leika til úrslita í Visa bikarnum næsta haust. Svo förum við upp eina deild á ári og verðum í efstu deild 2013. Það er klárt mál. The only way is up eins og skáldið sagði. Svo er það bara meistaradeildin eftir það.

Sp: Heldurðu að þú sért ekki að spenna bogann aðeins og hátt þarna?

T: Nei nei. Umgjörðin í kringum liðið er eins og hjá topp liði í ensku úrvalsdeildinni. Ég er að sjálfsögðu framkvæmdastjóri, Jón Frímann er direktor of football, Gústi Alex er physio, T-Bone er head coach, Baldur Orri er gjaldkeri, Kári í Reykofninum er Chairman osfr. Þetta bara getur ekki klikkað.

Sp: Já þú segir það. Hver heldurðu að eigi eftir að skara fram úr í liðinu næsta sumar?

T: Fyrir utan sjálfan mig þá??? Ætli það verði ekki hann Hinni Rauði. Sá er að meika það. Hann er búinn að spila 30 sekúndur í futsal, eiga eitt skot og skora eitt mark. Toppiði það. Maðurinn er með 100% færanýtingu og eina sem hann þarf að gera er að halda áfram á sömu braut. Það er það eina sem ég legg fyrir hann og ef hann fylgir því þá eignast Grundarfjörður landsliðsmann áður en árið 2010 er liðið. Þannig að það veltur bara á honum.

Sp: Já sææææællll það er ekkert annað. Einhverjir fleiri?

T: Já ég reikna með Hemma, Heimi, Semek, Viktori, T-Bone sterkum. Svo er spurning með Ragnar Smára sem er á reiðistjórnunarnámskeiði... ef að honum tekst að hemja sig þá gæti hann náð langt. Jafnvel komist á bekkinn. Svo er Þorri óskrifað blað. Gæti blómstrað.

Sp: Spyrill heyrði því fleygt að Víkingur Hermann gæti sprungið út næsta sumar, er eitthvað til í því??

T: Það gæti verið ef hann fylgir magaæfingaprógramminu sem ég bjó til fyrir hann. Ef ekki þá eru meiri líkur á að hann hreinlega spryngi ef hann heldur áfram að éta. Ég meina, hver étur lærissneiðar í morgunmat??? Come on.


Sp: Já svo að þið eruð svona brattir. Eitthvað að lokum?

T: Já klárlega. Ég reikna með að sjá 7000 manns á hverjum einasta heimaleik næsta sumar. Svo þurfum við að byggja stúku við hvern enda vallarins og ég vil að stúkan sem er við íþróttahúsið kallist Tommastúka.

Sp: Þú ert ágætur. Takk fyrir spjallið.

T: Þakka þér og lifi Grundarfjörður.


Skrifað 7.12.2009 kl. 11:03 af Spyrill

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

2.12.2009

Víkingur Ól - Grundarfjörður 7-4

Jæja... Grannaslagurinn búinn. 7-4 tap og maður er hálf svekktur. Við fengum fullt af fínum færum en Einar nokkur Hjörleifsson markvörður Víkinga var í þvílíku fanta formi og hleypti engu inn. Tryggvi setti 3 mörk og Ragnar Smári 1

Leikurinn byrjaði ágætlega. Víkingar komust í 1-0 en Ragnar Smári jafnaði fljótlega eftir það. Við reyndum að halda stöðum og vera fyrir aftan boltann. Víkingar komust í 2-1 en fljótlega jafnaði Tryggvi. Svo komust Víkingar í 3-2 og aftur jöfnum við minnir mig. Amk var staðan í hálfleik 4-3 Víkingum í vil. Í seinni hálfleik héldum við skipulaginu og það leið langur tími í næsta mark. Ragnar Smári fékk rauða spjaldið og við þurftum að vera einum færri í amk 2 mínútur eða þangað til að við fengum mark á okkur. Það var nú bara þannig að við vorum einum færri í c.a. 10 sek því að Víkingur komst í 5-3. Og svo strax uppúr því í 6-3 og róðurinn orðinn þungur fyrir Grundarfjörð. En Tryggvi náði að klóra aðeins í bakkann og lagaði stöðuna í 6-4 en lengra komumst við ekki. Víkingarnir áttu svo síðasta orðið og leikurinn endaði 7-4.

Við vorum alveg vel inní þessum leik og áttum fullt af fínum færum. Þeir voru meira með boltann en við beittum skyndisóknum og fengum flest okkar færi úr því. Svo var það bara vendi punkturinn í kringum þetta rauða spjald að við fáum á okkur 2 mörk á einni mínútu og dagskránni þannig séð lokið. Við göngum samt stoltir af velli og reynum bara að gera betur næst.

Við þökkum Víkingum fyrir leikinn og óskum þeim til hamingju með sigurinn.

Skrifað 2.12.2009 kl. 22:48 af Tommi

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

2.12.2009

Engin æfing í kvöld

Æfingin í kvöld fellur niður vegna leiks Víkings Ól og Grundarfjarðar sem verður í íþróttahúsinu í Ólafsvík kl 19:00 í kvöld.

Stjórnin

Skrifað 2.12.2009 kl. 10:32 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.11.2009

Babbinu reddað

Einvaldafundur var haldinn í skyndi að Hlíðarvegi 17 og niðurstaða fengin í þetta stóra búningamál.

Hér er dýrðin.




Hvernig líst ykkur prímadonnunum á þennan???

Skrifað 23.11.2009 kl. 21:06 af Tommi og Jón Frímann

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.11.2009

Babb í bátinn

Það er komið smá babb í bátinn varðandi nýju búningana... loksins þegar ég ætlaði að panta þá í morgun þá kom uppúr krafsinu að þeir voru að detta út og nú þegar uppseldir í Large stærðinni.

Ég fór á netið og byrjaði að leita að nýjum búningum og mér leist persónulega best á þessa:


Ég held að T-Bone og Semek eigi eftir að líta hrikalega vel út í þessu... Við kaupum gloss og naglalakk í stíl að sjálfsögðu.

En að öllu gamni slepptu þá var ég að spá í þessa...


Eða jafnvel þessa...


Eða bara þessa...


Skrifað 23.11.2009 kl. 19:15 af Tommi

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.11.2009

9-4

Hörku leikur í gær þegar Grundarfjörður og Afturelding/Hvíti Riddarinn mættust í Futsal í Ólafsvíkinni. Leikurinn var í járnum framan af og það var ekki fyrr en á 9 mín sem að Heimir Þór chippaði boltanum yfir sprækan markvörð gestanna og kom Grundarfirði í 1-0. En Heimir var ekki lengi í paradís því að mjög skömmu síðar jöfnuðu gestirnir 1-1 og settu svo eitt mark enn áður en hálfleikurinn var úti. Semsagt 1-2 í hálfleik. Við óðum samt í færum í fyrri hálfleik og voru mjög óheppnir að vera undir. Klúðruðum nokkrum deddurum. Gestirnir áttu samt sín færi en Viktor átti sannkallaðan stórleik í markinu og varði eins og berserkur. Honum verður ekki kennt um mörkin sem hann fékk á sig.

Í seinni hálfleik ætluðum við aldeilis að taka á því en fljótlega var staðan samt 1-3 gestunum í vil. T-Bone var ekki alveg sáttur við þetta og ákvað að minnka muninn fyrir okkur og náði að pota einu inn. 2-3 var staðan. Skömmu eftir það ákvað Ragnar Smári að strauja einn Aftureldingarmanninn inní vítateig og vítaspyrna dæmd... Þeir koma sér í þægilega stöðu 2-4 og ákveða að fagna eins og Tryggvi Guðmundsson hérna back in the day og láta eins og kjánar. Við tökum leikhlé og í þessu leikhléi voru strákarnir skeindir hressilega því að eftir þetta tiltekna leikhlé átti Afturendi ekki séns.

T-Bone setti mikilvægt mark og minnkaði muninn í 3-4. Skömmu síðar jafnaði Heimir Þór 4-4 og allt ætlaði að verða vitlaust í höllinni. Eftir þetta voru Afturelding sprungnir og við keyrðum yfir þá. Heimir setti 2 í viðbót, Semek og Ragnar Smári eitt markið hver og staðan orðin 8-4 fyrir heimamenn og lítið eftir. Markið hjá Ragnari Smára þótti sérlega glæsilegt að hans eigin sögn. Þá geystist hann úr vörninni, tók 18 skæri, sólaði 2 og klobbaði svo markmanninn ala C.Ronaldo.
Þegar örfáar sekúndur lifðu leiks kom Rauða þruman inná og fiskaði víti. Hann heimtaði að taka það sjálfur og rak síðasta naglann í kistu Mosfellinga. Hinni steig sallerólegur á punktinn.... horfði einbeittur og titrandi markvörðinn og lét svo vaða.... Boltinn small í stönginni... svo í hina stöngina... aftur í stöngina á móti og svo í netið.... Fögnuðurinn sem skein úr andliti Rauða verður seint leikinn eftir því gleðin var svo einlæg. 9-4 og leikurinn búinn.

Byrjunarliðið var þannig:

Viktor Örn stóð í markinu
Tryggvi og Ragnar Smári voru aftari
Semek og Heimir Þór voru fremri.

Á bekknum sátu:
Ingi Björn
Rúnar G
Danni danski
Hinni Rauði
Þorri
Tommi hinn stressaði.

Mörkin:
Heimir Þór 4
T-Bone 2
Semek 1
Ragnar Smári 1
Hinni 1

Þetta var klassa leikur hjá öllum og átti Viktor stórleik í markinu. Ragnar Smári átti líka gríðarlega góðan leik og bjargaði tvisvar á línu. Tryggvi var þvílíkt solid, Heimir grimmur í sókninni og Semek var gríðar seigur. Ingi Björn kom líka mjög öflugur af bekknum og var virkilega óheppinn að skora ekki. Rúnar líka. Danski var þéttur í þessa mínútu sem hann spilaði. Svo var Hinni náttúrulega með lang bestu skotnýtinguna eða 100% og legg ég til að hann verði kallaður Hinni Hundrað prósent hér eftir... eða amk þangað til að það breytist.

Svo er það derby slagur af bestu gerð í næsta leik... Víkingur Ól - Grundarfjörður 2 des kl 19:00
Leikur sem enginn má missa af.

Skrifað 22.11.2009 kl. 11:12 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

21.11.2009

Leikur í dag

Grundarfjörður - Afturelding í dag í Ólafsvík.

Hópurinn:

Heimir Þór
Tryggvi
Semek
Viktor
Ragnar Smári
Ingi Björn
Tommi
Hinni J
Þorri
Danni danski

Við ætlum að hittast kl 13:20 eða tuttugu mínútur yfir eitt í íþróttahúsinu í Ólafsvík. Ef þið eruð farlausir þá verðiði að heyra í mér og við finnum eitthvað út úr því.

Skrifað 21.11.2009 kl. 10:10 af Tommi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.11.2009

Grundarfjörður - Afturelding/Hvíti Riddarinn

Á laugardaginn kemur leiða saman hesta sína Grundarfjörður og Afturelding/Hvíti Riddarinn kl 14:00 í íþróttahúsinu í Ólafsvík.

Þrennumaðurinn úr síðasta leik hann Hemmi Geir verður farinn á sjóinn en samningar eru að nást við hinn ægifagra T-Bone um að taka stöðu hans í byrjunarliðinu. Ekki ætti fegurðarstuðullinn að falla við þau skipti.

Nú verðum við bara að taka á því og reyna að halda út 2 hálfleiki á laugardaginn kemur... Sýnum Mosfellingum hvar T-Bone kaupir ölið.

Við hvetjum alla til að mæta og styðja við bakið á okkur. Ekki veitir af því flestir í liðinu eru með ansi breitt bak... nefni engin nöfn en Semek kemur sterkur inn þar.

Stjórnin.

Skrifað 19.11.2009 kl. 10:38 af Tommi

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.11.2009

Víkingur með fegurstu limaburðina

Skoða nánar

17.11.2009

Pub Quiz nr 6

Skoða nánar

15.11.2009

Fjölnir - Grundarfjörður 6-5

Skoða nánar

12.11.2009

Fjölnir Grundarfjörður

Skoða nánar

10.11.2009

Futsal hefst á laugardaginn

Skoða nánar

5.11.2009

Flott æfing í gær

Skoða nánar

3.11.2009

Íslandsmótið í Futsal

Skoða nánar

2.11.2009

Fínasta æfing

Skoða nánar

29.10.2009

Fámenn æfing í gær

Skoða nánar

28.10.2009

Æfing í kvöld kl 20:10

Skoða nánar

27.10.2009

Pub Quiz nr 4

Skoða nánar

22.10.2009

Næsta æfing fellur niður

Skoða nánar

21.10.2009

Fyndið

Skoða nánar

20.10.2009

Viðtal

Skoða nánar

15.10.2009

Hörku mæting

Skoða nánar

14.10.2009

Æfing í kvöld

Skoða nánar

9.10.2009

Fréttir af leikmannamarkaðnum.

Skoða nánar

7.10.2009

Æfing í kvöld

Skoða nánar

6.10.2009

Svaðaleg æfing

Skoða nánar

6.10.2009

Borga

Skoða nánar

4.10.2009

Æfing í kvöld

Skoða nánar

2.10.2009

Dyraverðir óskast

Skoða nánar

1.10.2009

Fyrsta bloggið

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 8
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 80
Gestir í gær: 29
Samtals flettingar: 30123
Samtals gestir: 9961
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 02:34:11