|
Meistaraflokkur Grundarfjarðar Knattspyrnulið Grundarfjarðar karla er samansett af ægifögrum einstaklingum sem ætla alla leið. |
|
Vafraðu umEldra efni Meistaraflokkur Grundarfjarðar Tölvupóstfang: tomasfreyr@gmail.comAfmælisdagur: 10. júlí 1933Heimilisfang: Grundargata 68Staðsetning: GrundarfjörðurÖnnur vefsíða: http://umfg.grundo.isUm: Við erum lang bestirBankanúmer: 0191-05-70100Tenglar |
06.12.2011 09:01Treyjur![]() Heimir Þór tekur sig einstaklega vel út í treyjunni. Langar þig til að eignast gullfallega treyju meistaraflokks Grundarfjarðar? Ef svo er þá getur þú haft samband við Tomma tomasfreyr(hja)gmail.com og nálgast þetta hjá honum. Treyjan kostar aðeins 5000 kr og rennur allur ágóðinn beint inn í Meistaraflokkinn. Treyjurnar eru til í flestum stærðum frá barna og upp í fullorðins. ![]() Aron ber búninginn vel. Þetta verður aðallbúningur liðsins næsta sumar. Um að gera að fjárfesta í treyju fyrir tímabilið og lita brekkuna bláa. Jólagjöfin í ár? Skrifað af Tommi 19.09.2011 13:20LokahófiðLokahóf Grundarfjarðar fór fram laugardaginn 10. sep. síðastliðinn.. Þar spiluðu ungur á móti gömlum, svo var leikur gegn Draugabönum þar sem að heilt ball var undir. Svo var standandi partý fram eftir nóttu. Mikið fjör og mikið gaman. Leikmaður ársins 2011 Aron Baldursson Efnilegasti leikmaðurinn 2011 Ingólfur Örn Kristjánsson Markahæstur 2011 Heimir Þór Ásgeirsson Skrifað af Tommi 31.08.2011 23:41JafntefliÞá er það ljóst að við höfum lokið keppni í Íslandsmótinu þetta árið... Við gerðum 1-1 jafntefli við Magna á heimavelli í gær og þar með ljóst að Magni fer áfram. Þeir skoruðu fyrst og það var því ljóst að við þurftum að skora þrjú til að komast áfram. Hemmi jafnaði og þar við sat. Miðað við spilamennskuna okkar þá áttum við fyllilega skilið að fara lengra. Við vorum einum færri nánast allan síðari hálfleikinn fyrir norðan og fáum á okkur mark á lokamínútunni þar. Svo skora þeir mark hérna sem angaði all svakalega af rangstöðu að það hálfa var mikið meira en nóg. ![]() En svona er þetta... stundum fellur þetta bara ekki með okkur og við komum bara tvíefldir til leiks á næsta ári. ![]() Sumarið er samt búið að vera frábært og framar öllum vonum. Í fyrra vorum við með 5 stig, 1 sigurleik, 2 jafntefli og 11 töp. Í ár var þetta akkúrat öfugt. 11 sigrar, 2 jafntefli og 1 tap í riðlinum. Alveg frábært hjá okkur. Það er líka frábært hvað fólk hefur verið rosalega duglegt að mæta á völlinn hjá okkur til að styðja við bakið á okkur. ![]() Nú er það bara lokahófið á næsta leiti... stay tuned. Fleiri myndir í myndaalbúminu hér til hliðar. Skrifað af Tommi 30.08.2011 08:42Tap á GrenivíkVið strákarnir fórum í road trip til Grenivíkur um liðna helgi. Gistum eina nótt á Akureyri og spiluðum svo við Magna á laugardeginum. Ferðin var mjög skemmtileg og ég held svei mér þá að hópurinn hafi hreinlega þjappað sér eilítið betur saman við þetta. Enda sváfu strákarnir saman í 140 cm breiðum rúmum. Það jafnast ekkert á við gott kúr svona til að koma sér í gírinn. Svo bauð Hótel Framnes okkur í súpu og pasta á Jónsabúð á Grenivík fyrir leik og þökkum við kærlega fyrir það góða boð. Leikurinn sjálfur var svo annað. Við vorum lengi að byrja... vorum hálf slappir fyrstu 20 mínúturnar en vörnin var samt góð. Magni var ekki að ná að skapa sér neitt af viti, áttu 2 skot utan af velli sem ógnuðu ekkert. Eftir fyrstu 20 mínúturnar fórum við að vinna okkur inní leikinn. Fengum nokkur færi en vorum óheppnir. ![]() Í síðari hálfleik byrjaði Golli á því að láta, frekar slakan dómara leiksins, reka sig útaf. Viktor fór í markið og Raggi Mar datt út. Við einum færri en samt var vörnin hjá okkur ógnar sterk. Pressan hjá Magna óx jafnt og þétt eins og gefur að skilja en við virtumst ætla að halda þetta út. Það var svo á 93 mínútu að eitthvað gefur undan og Magna menn sleppa í gegn og skora. 1-0 á 93 mínútu... Hrikalega svekkjandi. ![]() Þannig er staðan fyrir síðari leikinn sem verður í dag. Við eigum alveg góðan séns og ekkert annað en næsta umferð er á dagskrá. ![]() Nú þurfa allir að mæta á völlinn á eftir og styðja okkur í þessari baráttu sem er framundan. Fleiri myndir inni í albúminu Skrifað af Tommi 25.08.2011 15:55ÚtvarpslýsingHann Hinni Konn mun verða með beina lýsingu af leiknum hér á veraldarvefnum á laugardaginn, fyrir þá sem hafa áhuga en komast ekki með okkur norður. Linkurinn er hérna: Bein lýsing Um að gera að hlusta á Hinna fara með gamanmál ásamt því að lýsa leiknum. Meistaraflokksráð. Skrifað af Tommi 20.08.2011 01:09StórsigurFöstudagskvöldið 19. ágúst mættu Skallagrímsmenn í Grundarfjörðinn til að etja kappi við heimamenn. Með sigri gátum við gulltryggt okkur efsta sætið í riðlinum og verið með mestan stigafjölda af öllum liðinum í 3 deildinni. ![]() Byrjunarliðið gegn Skallagrím Við byrjuðum þennan leik af miklum krafti og það var greinilegt hvort liðið var grimmara því að það voru ekki liðnar nema 2 mínútur af leiknum þegar að Heimir Þór fær boltann fyrir utan teig, tekur einn á og setur hann í fjærhornið og staðan orðin 1-0. ![]() Heimir fagnar fyrsta markinu Við vorum með öll völd á vellinum og bara tímaspursmál hvenær fleiri mörk myndu líta dagsins ljós. Það gerðist svo á 24 mínútu að við fáum hornspyrnu, boltinn berst inní teig þar sem að Finnbogi nær að skófla honum að marki þar sem að Heimir Þór kemur aðvífandi og kemur okkur í 2-0. ![]() Annað markið í uppsiglingu Þannig var staðan þegar að dómarinn flautaði til hálfleiks. Í síðari hálfleik komu Borgnesingarnir grimmari til leiks og reyndu aðeins að klóra í bakkann. Það gekk ekki upp hjá þeim og átti Golli frekar náðugan dag í markinu hjá okkur. Það var svo á 66 mínútu að Heimir Þór nær að fullkomna þrennuna en rétt áður hafði hann átt skot í slá. ![]() Heimir bregður á leik eftir að hafa skorað þrennu. Staðan því orðin 3-0 og það var eins og allur vindur væri úr Skallagrímsmönnum eftir þetta. Við óðum í færum og átti Aron til að mynda skalla rétt framhjá markinu. Finnbogi var líka óheppinn fyrir framan rammann þangað til á 78 mínútu að hann nær loksins að koma boltanum yfir marklínuna og koma okkur í 4-0. ![]() Finnbogi var að leika sinn fyrsta leik í sumar á Grundarfjarðarvelli og fagnaði því með marki. Það var svo á 83 mínútu að Birkir Freyr, sem var nýkominn inná sem varamaður, nær að skora og koma okkur í 5-0 með sinni fyrstu snertingu í leiknum. Þetta var hans fyrsta mark í sumar og er strákurinn vel að því kominn. ![]() Strákarnir fagna Birki Leiknum lauk með 5-0 stórsigri okkar og gulltryggðum við því efsta sætið í riðlinum. Við enduðum riðilinn með 35 stig sem eru flestu stigin af öllum liðum í þriðju deildinni öllum riðlum. Af 14 leikjum þá unnum við 11, gerðum 2 jafntefli (Bæði gegn Kára) og töpuðum aðeins 1 leik (gegn Álftanesi hér heima). Við skoruðum 37 mörk og fengum aðeins 12 mörk á okkur (næst fæst mörk í 3 deildinni) Árangur sumarsins er framar okkar björtustu vonum og komum við skemmtilega á óvart með frábærri spilamennsku og öflugum varnarleik. Í úrslitakeppninni mætum við Magna frá Grenivík sem að lenti í 2 sæti D riðils. Næsti leikur okkar er því laugardaginn 27. ágúst kl 14:00 á Grenivíkurvelli. Fleiri myndir eru í myndaalbúminu. Skrifað af Tommi 13.08.2011 18:33Sæti í úrslitakeppninniVið mættum Álftanesi á Bessastaðavelli í dag. Fyrir leikinn vorum við í efsta sætinu með 29 stig en Álftanes í öðru sæti með 28 stig. Þetta var því sannkallaður toppslagur í C-riðli. Leikurinn sjálfur var í járnum til að byrja með. Liðin skiptust á að sækja og jafnræði var með þeim. Það var svo Steinar Már sem braut ísinn þegar hann skoraðu með góðu langskoti í fyrri hálfleik. Staðan orðin 0-1 fyrir okkur. Eftir markið fór Álftanes að pressa aðeins en gríðarlega sterk vörn okkar bægði flestum sóknum frá og það sem kom í gegn varði Ingólfur. ![]() Í síðar hálfleik var annað uppá teningnum. Álftnesingar komur grimmir til leiks og freistuðu þess að jafna. Þeir voru mikið meira með boltann en Ingólfur átti sannkallaðan stórleik í markinu hjá okkur. Hann varði allt sem kom á markið og það voru nokkur dauðafæri. Í eitt skiptið bjargaði stöngin okkur. Pressa heimamanna jókst jafnt og þétt en við það fækkaði í vörninni hjá þeim. Það var svo Steinar Már sem náði að geysast upp kantinn í eitt skiptið þegar fáliðað var í vörn heimamanna og koma boltanum í netið og okkur þar af leiðandi í 0-2 þegar skammt var eftir af leiknum. Heimamenn fengu nokkur dauðafæri í viðbót en Ingólfur varði þau jafn harðan og gerir tilkall til þess að verða maður leiksins að öðrum ólöstuðum. En vörnin hjá okkur var gríðarsterk í þessum leik. Nú er sætið í úrslitakeppninni tryggt og bara spurning um hvort að við lendum í fyrsta eða öðru sæti í riðlinum. Með sigri á Skallagrím í næsta leik er efsta sætið tryggt. ![]() ![]() Það var Davíð Wium sem tók myndirnar fyrir okkur í þetta skiptið. Fleiri myndir inná myndaalbúminu. Skrifað af Tommi 06.08.2011 20:25JafntefliLaugardaginn 6. ágúst mættum við liði Kára frá Akranesi á Akranesvelli. Kári var fyrir þennan leik með 22 stig, 6 stigum á eftir okkur. Með sigri hefði Kári getað blandað sér af miklum krafti í baráttuna um úrslitakeppnina. ![]() Það var mikið í húfi fyrir bæði lið. Leikurinn byrjaði frekar varlega en það var á 8 mínútu að Gísli Freyr Brynjarsson fær sendingu innfyrir og skorar og staðan orðin 1-0 Kára í vil. Við þetta vöknuðum við og fórum að setja aðeins á þá. Það bar svo árangur þegar að Heimir tekur aukaspyrnu fyrir utan teig og smyr boltann uppí samúel og jafnar metin 1-1. Stórglæsilegt mark hjá kappanum. Þannig var staðan í hálfleik. ![]() Það voru ekki liðnar nema 10 mínútur af síðari hálfleik þegar að Káramenn komast aftur yfir. Þetta var gegn gangi leiksins því að við vorum að eiga virkilega góðan kafla þegar að þetta mark kom í andlitið á okkur. Svo á 71 mínútu missa Kára menn Gísla Frey útaf en hann náði sér í tvö gul spjöld með nokkurra mínútna millibili og var því sendur í sturtu. Þá upphófst mikil pressa að marki Káramanna sem bökkuðu svolítið eins og við var að búast. Sú pressa bar árangur á 91 mínútu þegar að Steinar Már fær góða fyrirgjöf frá Tryggva og nær að stýra boltanum framhjá Eyþóri í marki Káramanna og jafnar metin í 2-2. Þetta urðu úrslit leiksins og gríðarlega mikilvægt stig fyrir okkur sem gefur okkur góðan séns á sæti í úrslitakeppninni. Við erum einir á toppnum með 29 stig, einu stigi meira en Álftanes. Berserkir eru svo með 27 stig en Álftanes og Berserkir mætast í síðasta leiknum. Okkur nægir einn sigur í viðbót til að tryggja okkur. ![]() Það eru fleiri myndir í albúminu. Skrifað af Tommi 29.07.2011 15:45Nýr leikmaðurGrundarfjörður hefur fengið liðsmann frá BÍ... Hann heitir Stratos Christo Efstathiou og er frá Suður Afríku. Hann mun verða löglegur frá og með morgundeginum. Skrifað af Tommi 29.07.2011 11:58SigurFimmtudagskvöldið 28. júlí síðastliðinn fórum við í Breiðholtið til að etja kappi við Afríku. Spilað var á gervigrasinu á Leiknisvellinum. Aðstæður til knattiðkunar var til fyrirmyndar. Smá súld á köflum og blankalogn. Við byrjuðum leikinn ágætlega en ekkert meira en það. Lítið að gerast í leiknum þannig séð og Ingólfur þurfti lítið að láta til sín taka í markinu. Afríka komst í eina álitlega sókn í öllum fyrri hálfleiknum en þá áttu þeir skot í þverslána og sluppum við með skrekkinn í það skiptið. Svo átti Tryggvi líka skalla tilbaka sem Ingólfur þurfti að hafa sig allan við til að verja. Á 42 mínútu á einn Afríkumaðurinn glórulausa tæklingu aftan í Jón Steinar sem lá óvígur eftir. Uppúr sauð á milli leikmanna og einum leikmanni Afríku var vikið af leikvelli. Runni kom inná fyrir Jón Steinar sem gat ekki haldið áfram sökum meiðsla. Runni var ekki búinn að vera inná nema í nokkrar sekúndur þegar að hann fékk dauðafæri en var óheppinn að skora ekki. Svo fékk hann tvö önnur mjög góð færi áður en dómarinn flautaði til leikhlés og staðan í hálfleik markalaus. ![]() Í síðari hálfleiknum var allt annað uppá teningnum því að Runni slapp í gegn og skoraði af öryggi strax í byrjun síðari hálfleiks. Staðan orðin 1-0 okkur í vil. Nokkrum mínútum síðar átti Heimir Þór mjög gott skot sem markvörður Afríku réði ekki við og staðan því orðin 2-0 aðeins með nokkurra mínútna millibili. ![]() Eftir þetta réðum við lögum og lofum á vellinum og Afríkumenn fengu ekki eitt einasta færi í seinni hálfleik. Við fengum þau nokkur en náðum því miður ekki að nýta neitt þeirra. Ragnar Smári átti fallegt skot í stöngina og út. Aron átti skalla í stöng auk þess sem markvörðurinn þeirra varði nokkrum sinnum vel. Lokastaðan varð því 2-0 og við náðum þriggja stiga forskoti í fyrsta sætinu í riðlinum. ![]() Framundan eru tveir gríðarlega mikilvægir útileikir gegn Kára og Álftanesi. Þessi tveir leikir koma til með að ráða úrslitum um hvort að við komumst áfram í úrslitakeppnina eður ei. ![]() Næsti leikur er gegn Kára laugardaginn 6. ágúst á Akranesi. Skrifað af Tommi 26.07.2011 17:41Ragnar Smári í bannÁ fundi Aga-og úrskurðarnefnd KSÍ 26.7.2011 var Ragnar Smári Guðmundsson - Meistaraflokkur karla - úrskurðaður í 1 leiks bann vegna 4 áminninga. Aga-og úrskurðanefnd KSÍ ![]() Það er því ljóst að Ragnar Smári mun ekki vera með þegar við leikum við Kára laugardaginn 6. ágúst... en hann mun koma grimmur inn í leikinn mikilvæga á móti Álftanesi. Skrifað af Tommi 25.07.2011 01:19Góður sigur á Góðri StundÍsbjörninn kom í heimsókn á Grundarfjarðarvöll á bæjarhátíðinni "Á Góðri Stund" síðasta föstudag. Margt var um manninn í brekkunni og mikil stemming á leiknum. Við byrjuðum leikinn af krafti og það voru ekki liðnar nema 8 mínútur af leiknum þegar að Jón Steinar átti gott skot sem söng í netinu. Staðan því orðin 1-0 og gríðarleg stemming. Það sem eftir lifði af fyrri hálfleik óðum við í færum og vorum óheppnir að ná ekki að bæta við. En með réttu hefði staðan átt að vera fjögur eða fimm núll í hálfleik. 1-0 forusta í hálfleik var vel verðskulduð og síst til of lítil. ![]() Í síðari hálfleik var annað uppá teningnum. Það voru ekki liðnar nema 3 mínútur af seinni hálfleik þegar Ísbjörninn fær aukaspyrnu rétt fyrir utan teig og skora stórglæsilegt mark beint uppúr henni. Staðan því 1-1 og þetta var sem blaut vatnstuska framan í okkar menn. Við þetta riðlaðist leikurinn hjá okkur og leikmenn Ísbjarnarins gengu á lagið. Á 75 mínútu fá þeir svo vítaspyrnu og skora úr henni og staðan orðin 1-2 Ísbirninum í vil. Útlitið frekar dökkt hjá okkur og brúnin á fjölmörgum áhorfendum farin að þyngjast. Við þetta mótlæti byrjaði sókn okkar að eflast. Við vorum mikið meira með boltann og sköpuðum okkar nokkur færi. Það var svo á 83 mínútu að Heimir Þór kemst upp að endamörkum með boltann og sendir hann fyrir markið þar sem að einn leikmaður Ísbjarnarins var svo óheppinn að setja boltann í eigið mark og staðan því orðin 2-2 og skammt eftir af leiknum. Við þetta efldust heimamenn til muna og settu mikla pressu. Sú pressa bar árangur þegar komnar voru 5 mínútur fram yfir venjulegan leiktíma þegar að markamaskínan Aron Baldurs nær að koma boltanum í netið með síðustu spyrnu leiksins. 3-2 og Ísbirnirnir rétt ná að taka miðju áður en dómarinn flautaði leikinn af. Mikil dramatík og allt ætlaði um koll að keyra í áhorfendastúkunni. Þrjú góð stig til okkar sem nær að halda okkur í toppsætinu með eins stigs forystu á Álftanes. Við erum núna komnir í 25 stig þegar að fjórir leikir eru eftir. ![]() Næsti leikur okkar er gegn Afríku á Leiknisvelli á fimmtudaginn. ![]() Fleiri myndir í myndaalbúminu. Skrifað af Tommi 17.07.2011 00:21Á toppnum.... í biliVið gerðum góða ferð í Grafarvoginn á laugardaginn. Þar mættum við liði Bjarnarins sem er undirklúbbur hjá Fjölni. Við höfðum unnið heimaleikinn í sumar og nú var komið að okkur að mæta á gervigrasið við Egilshöllina. Leikurinn var reyndar ekki mikið fyrir augað en gríðarleg barátta einkenndi leikinn. Það var svo á 28 mínútu að Steinar Már Ragnarsson nær að vinna boltann af einum varnarmanni Bjarnarins og geysist í átt að markinu. Varnarmaðurinn sér þann kost vænstan að toga Steinar niður og dómarinn dæmdi umsvifalaust vítaspyrnu. Hárréttur dómur. Heimir Þór steig upp og var kannski einum of svalur þegar hann ákvað að vippa boltanum í mitt markið. Sem betur fer fyrir okkur þá ákvað markvörður Bjarnarins að taka sénsinn og skutla sér, Þeir sem horfðu á þessa vítaspyrnu fengu hjartastopp í eina sekúndu þangað til að boltinn lá í netinu og staðan orðin 1-0 okkur í vil. Þannig var staðan alveg þangað til að dómarinn flautaði til leiksloka og þrjú stig í hús hjá okkur. Gríðarlega mikilvægt því að nú sitjum við á toppi C-riðils með 22 stig, einu meira en Álftanes sem á þó leik til góða gegn Kára á mánudaginn. Við njótum þess að vera á toppnum á meðan það stendur yfir. ![]() Heimir skoraði eina markið úr víti. Skrifað af Tommi 09.07.2011 17:55SigurVið unnum góðan sigur á feykisterku liði Berserkja í gær. Leikurinn var ansi forvitnilegur fyrir margar sakir. 5 mörk, 3 rauð spjöld og mikill hasar. ![]() Leikurinn byrjaði með mikilli baráttu en það voru leikmenn Berserkja sem skoruðu fyrsta markið. Það kom eftir að við hreinsum hornspyrnu út úr teignum og beint á einn berserkinn sem setur hann fyrir aftur og þar ná þeir að koma sér í 1-0 á 18 mínútu. Eftir þetta færðist mikil harka í leikinn og menn fóru að fá í skapið. Nokkur gul spjöld fóru á loft og Hemmi var stálheppinn að hanga inná eftir viðskipti sín við einn berserkinn. Það var svo á markamínútunni miklu, þeirri 43 að þeir ná að koma sér í 2-0 eftir sofandahátt í vörninni hjá okkur. Þannig var staðan í hálfleik. ![]() Í seinni hálfleik snerist dæmið við. Við fórum að halda haus og hætta að rífast í dómaranum á meðan þeir létu allt fara í taugarnar á sér og fóru að safna spjöldum. Það var svo á 57 mínútu að einn hjá þeim fékk sitt annað gula spjald fyrir að hindra aukaspyrnu hjá okkur og fékk reisupassann. 3 mínútum eftir það minnkar Aron muninn með marki eftir hornspyrnu og staðan orðin 2-1. Svo fóru undarlegir hlutir að gerast. Einn sóknarmaðurinn hjá þeim fékk 2 gul spjöld með 2 mínútna millibili og fór því snemma uppí stúku. Fjórum mínútum eftir það fékk sá þriðji beint rautt spjald fyrir munnsöfnum við dómarann sem á ekki að heyrast inná vellinum. 8 Berserkir inná vellinum sem áttu í vök að verjast gegn full skipuðu liði okkar. Aron skoraði svo sitt annað mark eftir fast leikatriði á 78 mínútu og svo fullkomnaði hann þrennuna nokkrum mínútum fyrir leikslok með sigurmark fyrir okkur og lokastaðan 3-2 í hörku leik. ![]() Nú erum við komnir með 19 stig í riðlinum og erum 2 stigum á eftir Álftanesi sem er í fyrsta sætinu. Næsti leikur okkar er við Björninn í Grafarvoginum og verður það eflaust hörku rimma því að þeir eru að komast á skrið. ![]() Skrifað af Tommi Flettingar í dag: 36 Gestir í dag: 13 Flettingar í gær: 71 Gestir í gær: 25 Samtals flettingar: 88997 Samtals gestir: 30066 Tölur uppfærðar: 28.1.2012 14:16:30 |